Mikil viðurkenning fyrir Frey

Freyr Alexandersson er að gera góða hluti með Rosenborg.

Freyr Alexandersson er að gera góða hluti með Rosenborg. Ljósmynd/Brann

Freyr Alexandersson hefur verið útnefndur þjálfari októbermánaðar í norsku úrvalsdeildinni eftir að hafa stýrt Rosenborg í gegnum mánuðinn án þess að tapa.

Rosenborg vann þrjá deildarleiki og gerði eitt jafntefli. Liðið situr í þriðja sæti þegar fjórir leikir eru eftir en liðið er langt á eftir Bodø/Glimt og Viking sem eru að berjast um titilinn.

Framherji hans, Amin Chiakha, hlaut einnig viðurkenningu en hann var valinn leikmaður mánaðarins.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅