Barnastjarna ver GoFundMe-söfnun sína og ætlar ekki að skila fé tilbaka: Gagnrýnendur hvetja hann til að fá sér vinnu - „Ég ætla að halda áfram að barna konuna mína“
Brandon „Bug“ Hall, sem sló í gegn sem barnaleikari í The Little Rascal stendur harður á sínum skoðunum eftir að hafa stofnað söfnun á GoFundMe til að fá fjárhagsaðstoð í aðdraganda þess að sjötta barnið er á leiðinni. Hall, sem er 41 árs, hefur svarað gagnrýnendum á samfélagsmiðlinum X. Einn notandi hvatti hann til að „fá sér alvöru vinnu“ og hætta að barna eiginkonu sína ef hann hefur ekki efni á því.
Hall svaraði hreint út: „Ég ætla að halda áfram að barna konuna mína.“
Þegar annar gagnrýnandi sagði honum að „flytja í lítinn bæ, nýta hæfileika sína og fá sér vinnu eins og allir aðrir,“ svaraði hann: „Nei. Ég er upptekinn við að byggja upp búgarð og sjá fjölskyldu minni og samfélaginu fyrir mat.“
Hall leiðrétti einnig þann misskilning að hann væri ekki að vinna. Hann þakkaði stuðningsmanni sem benti á að fyrrum leikarinn reyndi að vera „eins sjálfbjarga og mögulegt er, á meðan hann vinnur að því að byggja hús.“
Brandon Hall.
Notandi á X skrifaði: „Ég held bara að þetta sé ekki hefðbundið 9 til 5 starf heldur frekar ýmis verkefni sem unnin eru með ákveðið markmið í huga.“
„Það er rétt. Þetta var líka erfiðara ár,“ svaraði Hall. „Ég vann að mestu í fullu starfi, samhliða því að undirbúa lóðina fyrir nýja heimilið okkar.“
Hall setti af stað söfnun á GoFundMe síðasta fimmtudag. Hann greindi frá því að hann „þyrfti virkilega á aðstoð að halda,“ en það er innan við mánuður þar til eiginkona hans, Jill Marie DeGroff, á von á sjötta barni þeirra og þetta gerist á sama tíma og fjölskyldan er að flytja út í sveit í Arkansas.
„Það eru nú sex ár síðan ég tók þá ákvörðun að draga mig út úr sviðsljósinu, og allan þennan tíma hef ég forðast að biðja um fjárhagsaðstoð af þessu tagi,“ skrifaði Hall í lýsingunni. „Ég hef alltaf sagt að þetta hafi verið mín ákvörðun, og því vildi ég ekki varpa þessari dýrlegu byrði yfir á aðra nema enginn annar kostur væri í stöðunni.“
Hann birti mynd af sér ásamt eiginkonu sinni og börnum þeirra fimm. Eiginkona hans og fjórar ungar dætur þeirra klæddust allar eins grænum kjólum með síðum ermum.
„Ég hef dregist aðeins aftur úr með greiðslur á þeim fáu reikningum sem við höfum (sími, gas í húsbílinn og óvænt gjald fyrir tengingu við rafmagn),“ skrifaði hann um stöðu sína.
Þótt markmiðið hafi verið 2.000 dalir hefur hann safnað meira en 23.000 dölum.
Hall er þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Alfalfa Switzer í kvikmyndinni Little Rascals frá árinu 1994. Í janúar sagði hann við Daily Mail að hann hefði tekið upp fátæktarheit og lifði utan kerfisins sem „róttækur kaþólskur öfgamaður“. Hann sagðist hafa látið af hendi þá peninga sem hann aflaði sem barnastjarna og gefið þá til góðgerðarmála, ásamt mörgum af eigum sínum.
„Markmið mitt er að lifa lífi þar sem ég þarf sem minnst á tekjum að halda,“ sagði hann.
Hall í hlutverki sínu í The Little Rascals.
Hall hefur hins vegar komist í kast við lögin nokkrum sinnum síðan hann yfirgaf Hollywood árið 2020 til að lifa utan samfélagsins, við fátæklegar aðstæður. Í júní 2020 var hann handtekinn í Texas, grunaður um að hafa andað að sér efnum úr úðabrúsum sem ætlaðir eru til hreinsunar. Í apríl var hann handtekinn í Ohio og ákærður fyrir að mæta ekki fyrir dómstóla vegna máls sem átti rætur að rekja til desember 2024. Þann 29. október 2024 hafði Hall áður fengið sekt vegna umferðarlagabrots, þar sem hann var án ábyrgðartryggingar.
Segir Guð hafa ætlað honum söfnunarféð
Hall hyggst ekki skila þeim rúmlega 26.000 dölum sem söfnuðust umfram upphaflega markmið hans á GoFundMe þar sem hann telur að þessi óvænti fjárhagslegi ávinningur hafi verið hluti af áætlun Guðs.
„Vilji Guðs er mér oft ráðgáta,“ segir Hall í samtali við Page Six. Segist hann hafa upphaflega sett söfnunina með 2.000 dala markmiði til að hjálpa fjölskyldu sinni að komast í gegnum veturinn, eftir að röð áfalla varð til þess að þau þurftu í flýti að flytja í nýtt húsnæði í Arkansas. Hall segist aldrei hafa ætlað sér að safna meiru en þessari upphæð. Hann hafði jafnvel slökkt á sjálfvirkri stillingu GoFundMe sem hækkar söfnunarmarkmiðið, og lofaði að loka söfnuninni um leið og hún næði 2.000 dölum.
Hall segist hafa komist að því, skömmu áður en hann ræddi við Page Six, að söfnunarsíðan hefði lokið rannsókn sinni á öryggi og trausti, samþykkt söfnunina og myndi millifæra fjármunina innan tveggja til fimm daga.
„Ef þetta allt saman hefði ekki gerst, hefði ég látið gott heita með 2.000 dali og verið sáttur,“ segir hann. Hall segir að upphaflega hafi markmiðið með söfnuninni verið að standa undir grunnkostnaði yfir vetrartímann, sérstaklega þar sem eiginkona hans átti von á sjötta barni þeirra og hann ætlaði að annast hana og börnin á meðan hún jafnaði sig eftir fæðinguna.
„Ég ætlaði ekki að vera gráðugur og segjast þurfa peninga fyrir dráttarvél, sagverksmiðju eða allt hitt sem mig vantar til að komast af stað,“ segir hann. Hann vísar einnig á bug gagnrýni um að fátæktarheit hans þýði að hann neiti að vinna. Hall útskýrir að um sé að ræða „heit fyrir leikmenn“ sem feli ekki í sér algjöra afneitun á peningum, og að hann og fjölskylda hans haldi mánaðarlegum útgjöldum sínum í um það bil 300 dali.
„Ég leita eftir tekjum eða launaðri vinnu þegar upp kemur brýn fjárhagsþörf sem ekki er hægt að leysa á annan hátt,“ útskýrir hann. Að sögn Halls var söfnunin að lokum tilkynnt í stórum stíl af fólki sem sakaði hann um svik. Þetta fólk gagnrýndi ákvörðun hans um að biðja um fjárframlög, þrátt fyrir að hann hafi svarið fátæktareið. Hann segir að GoFundMe hafi læst söfnuninni, sem kom í veg fyrir að hann gæti tekið út peningana eða lokað söfnuninni.
Þegar Hall var spurður hvers vegna hann myndi ekki skila þeim peningum sem söfnuðust umfram upphaflega markmiðið svaraði hann því til að slíkt væri brot á orði hans.
„Ég hugsaði aldrei út í það hvað myndi gerast ef söfnunin færi fram úr markmiðinu,“ segir hann og bætir við að hann telji það vera „vilja Guðs“ að honum hafi ekki tekist að loka söfnuninni. „Ég ætla hiklaust að þiggja þetta sem gjöf frá Guði og sem blessun frá öllu því fólki sem, af einhverjum ástæðum, vildi blessa mig,“ segir hann.
Hall tekur fram að hann hafi aldrei lofað að skila umframfé, enda hafi hann ekki gert ráð fyrir að safna meira en hann óskaði eftir.
Hall segir að hann líti á aukaféð sem tækifæri til að flýta fyrir því að fjölskylda hans geti aftur orðið sjálfbær; þetta feli í sér kaup á búfénaði, dráttarvél og sagvél, og að lokum byggingu húss svo þau geti yfirgefið húsbílinn sem þau búa í núna. „Fyrir langflesta Bandaríkjamenn eru þetta upphæðir sem breyta öllu,“ segir hann. „Miðað við þann lífsstíl sem ég hef valið, þá breytir þetta líka öllu fyrir mig.“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗