„Alls ekki boðleg þjónusta“
Sigríður Dóra Magnúsdóttir, forstjóri heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, segir alvarlegt ef fólk nær ekki áheyrn heilbrigðisstarfsfólks. Samsett mynd/Aðsend/Arnþór
Forstjóri Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu segir óásættanlegt að sjúklingar upplifi að ekki sé hlustað á þá eða að þeir nái ekki sambandi við heilbrigðisstarfsfólk þegar þeir leita aðstoðar. Unnið sé að því að bæta símsvörun og samræma þjónustu á heilsugæslustöðvum höfuðborgarsvæðisins.
Þá eigi læknar að fylgja eftir rannsóknum og skoðunum ef niðurstöður skýra ekki einkenni sem sjúklingur glímir við.
Mikill læknaskortur sé viðvarandi en hann megi ekki verða afsökun fyrir því að fólk fái ekki þá þjónustu sem það þurfi.
Forstjórinn segir þjónustu einkafyrirtækja, á borð við Intuens, sem bjóði upp á heilskoðun með ítarlegri segulómun, ekki gagnlega til að létta á álagi í heilbrigðiskerfinu. Þær skoðanir sem boðið sé upp á og niðurstöður þeirra, séu frekar til þess fallnar að valda heilsukvíða, þrátt fyrir að í einstaka tilfellum uppgötvist raunverulegur heilsufarsvandi.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗