Carrick mætti óvenju snemma – rekinn í dag?
Búist er við að Michael Carrick verði rekinn sem knattspyrnustjóri Manchester United í dag, að sögn Tyrone Marshall, fréttaritara Manchester Evening News.
Carrick mætti á Carrington, æfingasvæði United klukkan 7.15 í morgun, fyrr en venjulega. Gert er ráð fyrir að leikmenn sem eru ekki í landsliðsverkefnum æfi eins og venjulega.
Búist er við að framkvæmdastjórinn Omar Berrada og yfirmaður knattspyrnumála, Jason Wilcox, mæli með brottrekstri hans við Sir Jim Ratcliffe og Glazer-fjölskylduna og því verði framfylgt í dag.
United er í fallsæti eftir að hafa aðeins unnið einn af fyrstu tíu leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗