Íslenskt par á fimmtugsaldri geymdi stafla af fíkniefnum í Dugguvogi

Kona og maður, bæði fædd árið 1984 og skráð saman til heimilis í Reykjavík, hafa veirð ákærð fyrir stórfellt fíkniefnabrot.

Brotið felst í að hafa vistað í geymslurými á 2. hæð að Dugguvogi 4 í Reykjavík, mikið magn fíkniefna, m.a. um 2 kg af amfetamíni og 600 MDMA töflur, eða eins og segir í ákæru: „...2.099,67 g af amfetamíni, með 9,3-10% styrkleika í amfetamínbasa sem samsvarar 13-14% af amfetamínsúlfati, samtals 5.813,66 g af maríhúana, samtals 140,01 g af 3-klórómetýlkatínón (3-CMC), samtals 600 stk af MDMA töflum og samtals 51,25 g af MDMA kristöllum...“

Lögregla fann þessi efni við húsleit í Dugguvoginum þann 25. júlí árið 2024.

Héraðssaksóknari ákærði parið og krefst þess að þau verði dæmd til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Einnig er krafist upptöku á fíkniefnunum.

Málið verður þingfest við Héraðsdóm Reykjavíkur þann 17. nóvember næstkomandi. 

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅