Pochettino mjög heitur fyrir því að taka við United

Mauricio Pochettino, landsliðsþjálfari Bandaríkjanna, er sagður opinn fyrir því að taka við Manchester United ef félagið ákveður að reka Michael Carrick.

Samkvæmt The Sun er Argentínumaðurinn, sem er 54 ára, tilbúinn að hlusta á tilboð frá United en framtíð Carrick er í mikilli óvissu.

Búist er við að Carrick verði rekinn á allra næstu dögum.

Pochettino skrifaði undir nýjan fjögurra ára samning við bandaríska knattspyrnusambandið í sumar en hefur aldrei farið leynt með áhuga sinn á að snúa aftur í ensku úrvalsdeildina.

Hann hefur áður stýrt Tottenham og Chelsea á Englandi auk Paris Saint-Germain í Frakklandi.

Pochettino hefur lengi verið orðaður við Manchester United og var meðal þeirra sem komu til greina áður en Erik ten Hag var ráðinn árið 2022.

United situr nú í fallsæti eftir 4-4 jafntefli gegn Aston Villa um helgina.

Forráðamenn félagsins eru sagðir undirbúa brottrekstur Carrick í landsleikjahléinu og gæti Pochettino orðið einn helsti kandídatinn í starfið.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅