Tekin á teppið fyrir ummæli um United

Melissa Reddy

Melissa Reddy Ljósmynd/Sky Sports

Melissa Reddy, fyrrverandi fréttamaður hjá Sky Sports, heldur því fram að henni hafi verið bannað að minnast á eigendur Manchester United, Glazer-fjölskylduna, í tíu daga eftir að hún kallaði þá „sníkjudýr“.

„Þegar ég var aðalfréttamaður um Manchester United var mér einu sinni bannað að minnast á Glazer-fjölskylduna í tíu daga,“ sagði hún í myndbandi á Instagram. Reddy greindi ekki frá því hver setti bannið.

Hún sagði að atvikið hefði ekki komið í veg fyrir að hún gagnrýndi eigendurna og beindi hún einnig spjótum sínum að Ineos, sem Íslandsvinurinn Sir Jim Ratcliffe er meðeigandi að, en hann stýrir ferðinni hjá United um þessar mundir.

„Það skiptir engu máli hvaða knattspyrnustjóri er orðaður við Manchester United. Hann mun verða dæmdur til að mistakast vegna Glazer-fjölskyldunnar og Ineos,“ sagði hún.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅