Ákærðir í kjölfar tálbeituaðgerðar
Fimm manns eru ákærðir fyrir fíkniefnabrot og peningaþvætti í kjölfar þess er lögregla beitti tálbeituaðgerð til að lokka þá fram gegnum dulkóðaða samskiptamiðilinn Signal. AFP
Fimm manns eru ákærðir fyrir fíkniefnabrot og peningaþvætti á Stokkhólmssvæðinu í Svíþjóð í kjölfar þess er lögregla beitti tálbeituaðgerð á dulkóðaða samskiptamiðlinum Signal til að lokka þá fram, fyrst með því að kaupa lítið magn af kókaíni, en síðar með því að panta eitt kíló af efninu frá aðalákærða, manni frá Södertälje.
Í kjölfarið voru mennirnir handteknir, en að sögn Mariu Rasmusson, lektors í refsirétti við Uppsalaháskóla, sem ræðir við sænska ríkisútvarpið SVT, er því aðeins hægt að dæma sakborning fyrir glæp í kjölfar tálbeituaðgerðar hefði viðkomandi framið glæpinn engu að síður.
Verklagsreglur mótaðar í Hæstarétti
Segir Rasmusson Hæstarétt Svíþjóðar hafa lagt línurnar hvað tálbeituaðgerðir snertir og horfa þurfi til þess hver átt hafi frumkvæði að afbroti, hvort lögreglumenn undir fölsku flaggi hafi þrýst á grunaðan eða sakaðan einstakling að fremja afbrot og, þegar um fíkniefnabrot sé að ræða, hve langan tíma hafi tekið að útvega fíkniefnin.
Aðalákærði í málinu, maðurinn frá Södertälje, er grunaður um að standa á bak við söluaðganginn á Signal, en meðákærðu eru grunaðir um meðal annars aðild að stórfelldu fíkniefnabroti og peningaþvætti.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗