Landsliðsmenn Íslands rjúfa þögnina um fyllerí liðsfélaga sinna
Landsliðsmenn Íslands hafa hingað til ekki rætt agabrot nokkurra leikmanna liðsins í síðasta landsleikjaverkefni. Fótbolti.net ræddi hins vegar við tvo þeirra á Spáni fyrir komandi leiki í Þjóðadeildinni í gær.
Þetta kom upp milli leikja þrjú og fjögur í síðasta verkefni. Talið er að nokkrir leikmenn liðsins hafi farið á spilavíti og drukkið áfengi. Ekki hefur enn verið greint frá því hvaða menn áttu í hlut.
„Fyrst og fremst er mjög leiðinlegt að þetta kom upp, svekkjandi fyrir okkur leikmennina. Við erum klárlega ekki að gera okkur auðvelt fyrir með þessu. Pressan þarf alltaf að vera til staðar, utan frá eða innan frá, það þarf að nýta hana til góðs og ná í góð úrslit með því. Hvort sem það sé fótboltatengt eða ekki, þá verður alltaf að vera pressa á okkur að ná í úrslit og sama í hvort það sé í C, B, eða A-deild. Við viljum reyna ná í eins góð úrslit og hægt er,“ segir landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson, sem kallaði hópinn jafnframt saman á fund, við Fótbolta.net.
„Mér fannst einhvern veginn að ég ætti að taka smá frumkvæði, aðeins að þjappa hópnum saman. Stundum kemur svona til manns. Mér fannst þetta vera eitthvað sem leikmannahópurinn átti að taka á saman og mér fannst það heppnast mjög vel innan hópsins. Fyrir vikið held ég að við verðum töluvert sterkari hópur eftir þetta. Það var auðvitað mikil hjálp frá eldri leikmönnum: Aroni, Gylfa og Gulla, þeir eru eins og pabbar fyrir okkur alla og hugsa vel um okkur. Þeir hjálpa mér þegar ég þarf á þeim að halda. Ég er þeim mjög þakklátur.
Auðvitað ætti þetta aldrei að gerast og ég held að allir í hópnum séu meðvitaðir um það. Á einhverjum tímapunkti þurfum við að horfa á þetta sem lærdóm fyrir alla og gera hluti sem koma í veg fyrir að þetta gerist aftur. Ég held að leiðin sem var farin þegar þetta var tæklað hafi verið mjög góð; hjá liðinu, stjórninni og starfsteyminu. Mér fannst vel tekið á þessu hjá okkur innanborðs og við höldum jákvæðni í þessum glugga.“
Guðlaugur Victor Pálsson ræddi málið einnig í viðtali við vefinn.
„Ég skil alveg að þetta hafi náttúrulega sett svart ský yfir síðasta glugga. Ég myndi segja að innanborðs sé þetta ekki meiri pressa af því að hópurinn er það þéttur og góður og við stöndum saman.
Utan frá, já kannski, en við erum bara fókuseraðir saman hérna innandyra og auðvitað viljum við vinna. Við viljum vinna þennan riðil og við setjum nógu mikla pressu á okkur sjálfir þannig að það ætti ekki að skapa einhvern storm innanborðs. Þetta er frábær hópur og það var tæklað á þessu máli mjög vel og núna erum við bara komnir hingað og horfum fram á veginn.“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗