Aðsend grein: Forðast að ræða fílinn í stofunni
Aðsend grein úr Morgunblaðinu
Mikið hefur verið rætt um útlendingamálin hér á landi á liðnum árum, bæði í stjórnmálunum og þjóðfélaginu í heild, eins og víðar annars staðar í heiminum. Ekki sízt það aukna álag sem mikill fjöldi erlendra ríkisborgara sem komið hefur til landsins hefur óhjákvæmilega sett á innviði þjóðfélagsins, heilbrigðiskerfið, menntakerfið og ekki sízt húsnæðismarkaðinn. Þá gerir það eðli málsins samkvæmt alla aðlögun aðfluttra einstaklinga að þjóðfélaginu erfiðari en ella hefði verið raunin.
Hins vegar er sjaldnast rætt um meginástæðuna fyrir komu flestra erlendra ríkisborgara til landsins. Frjálst flæði fólks frá öðrum ríkjum innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) vegna aðildarinnar að EES-samningnum. Langflestir sem flutzt hafa hingað á liðnum árum hafa komið á grundvelli hans. Ríkisborgarar umræddra landa þurfa enda hvorki dvalar- né atvinnuleyfi hér á landi. Þá geta ríkisborgarar annarra ríkja komið til landsins ef þeir koma frá öðru aðildarríki samningsins.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗