Carrick mættur á æfingasvæði United - Verður hann rekinn í dag?

Hörður Snævar Jónsson

Þriðjudaginn 10. nóvember 2026 08:17

Matheus Cunha - Michael Carrick Getty Images

Michael Carrick, knattspyrnustjóri Manchester United, mætti á æfingasvæði félagsins í Carrington í morgun þrátt fyrir að hann gæti verið rekinn úr starfi síðar í dag.

Carrick mætti í æfingafatnaði en framtíð hans hjá félaginu hefur verið í mikilli óvissu undanfarna daga.

Forráðamenn Manchester United hafa farið yfir frammistöðu liðsins í síðustu þremur leikjum og metið hvort Carrick hafi gert nóg til að halda starfi sínu.

Samkvæmt nýjustu fregnum hafa Omar Berrada, framkvæmdastjóri félagsins, og Jason Wilcox, yfirmaður knattspyrnumála, misst trúna á að Carrick sé rétti maðurinn til að snúa gengi liðsins við.

United hefur átt afar erfitt uppdráttar á tímabilinu og situr nú í fallsæti ensku úrvalsdeildarinnar.

Liðið gerði 4-4 jafntefli gegn Aston Villa um helgina eftir dramatíska endurkomu.

Enn hefur engin endanleg ákvörðun verið tilkynnt en allt bendir til þess að Carrick gæti þurft að taka pokann sinn á næstu dögum.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅