Glímir við flughræðslu eftir barneignir
Molly-Mae Hague segir kvíðann fyrir flugi hafa orðið tífalt verri eftir fæðingu sonar síns. Skjáskot/Instagram
Raunveruleikastjarnan og áhrifavaldurinn Molly-Mae Hague segir flughræðslu hafa orðið að verulegu vandamáli eftir að hún varð móðir. Óttinn hafi gert vart við sig eftir fæðingu dóttur hennar og magnast enn frekar þegar sonurinn kom í heiminn.
Hague, sem er 27 ára og sló í gegn í þáttunum Love Island, á þriggja ára dótturina Bambi og fimm mánaða soninn Midas með unnusta sínum, hnefaleikakappanum Tommy Fury.
Í nýju myndskeiði á YouTube ræðir hún kvíðann sem fylgir því að fara um borð í flugvél. Þrátt fyrir að ferðast mikið segist hún eiga sífellt erfiðara með flug.
„Ég hef þróað með mér mikla flughræðslu, alveg gríðarlegan kvíða fyrir því að fljúga, eftir að ég varð mamma. Þetta byrjaði þegar Bambi fæddist en síðan ég eignaðist Midas hefur þetta orðið tífalt verra,“ segir hún.
Sér hættur á hverju strái
Hague segir fréttir af flugslysi í Flórída, þar sem börn voru meðal látinna, hafa fengið mjög á sig. Hún hafi ekki getað hætt að hugsa um fjölskylduna sem fórst og óttann sem fólkið hljóti að hafa upplifað.
Hún segir móðurhlutverkið einnig hafa breytt því hvernig hún horfir á hversdagslega hluti. Nú sjái hún mögulegar hættur sem hún hefði áður ekki leitt hugann að, hvort sem um sé að ræða glugga, glerhurðir eða fataskápa sem séu ekki festir við vegg.
„Mér finnst ég nánast vera að sjá fyrir mér hættur á hverju strái,“ segir hún.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/8/1690878.jpg)