Russell Brand æfur eftir fangelsisdóminn – Lögmaðurinn fær að kenna á því
Breski leikarinn og grínistinn Russell Brand er sagður fokreiður út í lögmann sinn eftir að hafa verið dæmdur í tíu og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun og þrjú kynferðisbrot í gær.
Samkvæmt heimildum Daily Mail í lögfræðigeiranum íhugar Brand nú að skipta um lögfræðiteymi, en talið er að hann hafi varið um einni milljón punda, jafnvirði rúmlega 160 milljóna íslenskra króna, í málsvörn sína.
Lögmaður hans, Ian Winter, hefur sætt harðri gagnrýni fyrir málflutning sinn. Sir Mark Rowley, yfirmaður lögreglunnar í Lundúnum, sagði málflutning hans jaðra við að kenna brotaþolunum sjálfum um, en reyndur breskur dómsfréttamaður lýsti yfirheyrslum hans yfir konunum sem einu versta dæmi sem hún hefði séð á tuttugu ára ferli sínum.
Við ákvörðun refsingar reyndi Winter að draga úr alvarleika nauðgunar Brands á 21 árs konu árið 2009. Hann benti á að konan hefði upphaflega samþykkt samfarir við Brand og reyndi að gera lítið úr brotinu með því að leggja áherslu á að Brand hefði aðeins brotið gegn samþykki hennar í stutta stund.
Hann hélt því einnig fram að önnur kona, sem Brand hafði brotið kynferðislega gegn á bar, hefði ekki verið sérstaklega berskjölduð þótt hún hefði verið undir áhrifum áfengis.
Dómarinn tók ekki undir allar röksemdir lögmannsins og lagði áherslu á að konur hefðu ávallt rétt til að segja nei, óháð klæðaburði, áfengisneyslu eða aðstæðum.
Winter hefur jafnframt verið gagnrýndur fyrir framkomu sína gagnvart brotaþolum og blaðamönnum. Hann tilkynnti sjálfur framkomu sína til eftirlitsaðila með lögmannsstéttinni eftir að hafa bölvað blaðamanni Sunday Times fyrir utan dómshúsið.
En þrátt fyrir þungan fangelsisdóm gætu frekari vandræði verið fram undan hjá Brand. Samkvæmt Daily Mail gæti hann átt yfir höfði sér frekari ákærur vegna kynferðisbrota, auk skaðabótakrafna frá konum sem saka hann um brot.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗