Umdeild ummæli vekja athygli í Þýskalandi
Uli Höness, forseti þýska knattspyrnufélagsins Bayern München, hefur vakið athygli í Þýskalandi eftir umdeild ummæli sín um Jamal Musiala.
Hann segir óvíst hvort sóknarmaðurinn nái aftur fyrri styrk eftir veikindi sem hafa haft áhrif á frammistöðu hans.
Musiala glímir við störuflogaveiki, taugasjúkdóm sem veldur vægum flogaköstum. Hann hefur æft með liðinu að undanförnu og er vonast til að verða klár í slaginn að loknu landsleikjahléi.
„Við stöndum frammi fyrir ákveðnum vanda. Hann glímir við veikindi sem ekki er auðvelt að lækna en hægt er að halda í skefjum með lyfjum. Það er hins vegar óvíst hvort hann nái nokkurn tímann aftur fyrri getu,“ sagði Höness.
Musiala, sem er fæddur árið 2003, er einn launahæsti leikmaður Bayern og er sagður fá um 25 milljónir evra í árslaun. Hann framlengdi samning sinn við félagið til ársins 2030.
„Auðvitað fær hann áfram greidd laun samkvæmt samningi sínum. En ímyndum okkur að Bayern færi að efast um samninginn á þeim forsendum að geta hans núna sé ekki sú sama og gert var ráð fyrir þegar samningurinn var undirritaður,“ sagði forsetinn.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗