Svikarar búa sig undir stóru tilboðsdagana – Ingvar segir að þetta ættu allir að varast
Stórir tilboðsdagar eru fram undan og margir Íslendingar hyggjast eflaust nýta tækifærið til að gera góð kaup og hefja jólainnkaupin. Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF) vara hins vegar við því að svikarar reyni að nýta sér verslunargleðina með ýmsum brögðum.
Ingvar Haraldsson, greininga- og samskiptastjóri SFF, vekur athygli á hættunni í grein sem birtist á Vísi í morgun. Hann bendir á að dagur einhleypra, Black Friday og Cyber Monday séu fram undan og að svikarar nýti sér slíka tilboðsdaga til að komast yfir kortaupplýsingar, lykilorð og fjármuni fólks.
Gervigreind gerir svikin trúverðugri
Að sögn Ingvars útbúa svikarar meðal annars falskar netverslanir, auglýsingar á samfélagsmiðlum og SMS-skilaboð sem virðast koma frá þekktum fyrirtækjum, til dæmis á sviði verslunar eða flutninga.
Skipulagðir glæpahópar standi oft að baki svikunum og með tilkomu gervigreindar verði sífellt erfiðara að greina á milli raunverulegra skilaboða og svikatilrauna.
Ein algengasta aðferð svikaranna sé að skapa falska tímapressu. Neytendum sé til dæmis sagt að tilboð gildi aðeins í nokkrar mínútur, að síðasta eintakið sé að seljast eða að greiða þurfi tafarlaust sendingargjald.
„Mitt í hamagangi hversdagsins þegar mikið er um tilboð og vörusendingar getur verið auðveldara að falla fyrir slíkum skilaboðum. Því er mikilvægt að gefa sér tíma til að kanna hvort allt sé með felldu áður en kaup eru gerð eða greiðsla samþykkt. Það er ólíklegt að þetta sé einmitt síðasta eintakið eða engin önnur tilboð bjóðist,“ segir Ingvar.
Passaðu þig á hlekkjunum
Ingvar bendir einnig á að þegar netverslun eykst fjölgi þeim sem eiga von á pakkasendingum. Svikarar nýti sér það með því að senda falskar tilkynningar frá flutningafyrirtækjum þar sem fólk er beðið um að greiða smávægilegt gjald eða staðfesta afhendingarupplýsingar.
Sambærileg skilaboð geti virst koma frá bönkum þar sem varað er við grunsamlegum færslum og fólk hvatt til að bregðast strax við.
Ingvar hvetur fólk til að smella ekki á hlekki í óvæntum skilaboðum heldur fara sjálft inn á vefsíður eða í öpp viðkomandi fyrirtækja.
Hann leggur jafnframt áherslu á að fólk samþykki aldrei greiðslur eða auðkenningarbeiðnir sem það kannast ekki við. Vakni grunur um svik eigi að hafa tafarlaust samband við bankann og tilkynna málið til lögreglu.
SFF hefur tekið saman fimm ráð til að forðast netsvik á tilboðsdögum. Þau felast meðal annars í því að gefa sér tíma til að kanna tilboð, athuga áreiðanleika netverslana, varast óvænta hlekki og gæta vel að kortaupplýsingum og rafrænum skilríkjum.
Samtökin hafa einnig útbúið sérstakt netsvikapróf þar sem almenningur getur kannað hversu vel hann þekkir algengustu svikatilraunirnar.
„Það er alltaf ánægjulegt að gera góð kaup, en bestu kaupin eru þau sem þú sérð ekki eftir,“ segir Ingvar að lokum.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗