Ekki svo dýrt fyrir United að reka Carrick - Pochettino með ákvæði
Miðað við nýjustu vendingar mun Manchester United reka Michael Carrick úr stjórastólnum á næstunni. Félagið er farið að horfa í kringum sig eftir arftökum.
Samkvæmt blaðamanninum Ben Jacobs er uppsagnarákvæði í samningi Carrick sem gerir félaginu kleift að losa sig við hann með minni tilkostnaði en í tilfelli fyrri knattspyrnustjóra.
Mauricio Pochettino er nú sagður líklegur til að taka við og er hann sjálfur opinn fyrir því ef marka má erlenda miðla.
Argentínumaðurinn framlengdi nýlega samning sinn við bandaríska knattspyrnusambandið en í honum er riftunarákvæði sem ætti að gera honum kleift að stökkva á starfið á Old Trafford.
Gengi United á leiktíðinni hefur verið afleitt og þrátt fyrir að liðið hafi komið til baka í síðustu leikjum, unnið sigur á Roma og sótt jafntefli gegn Aston Villa virðist sem svo að dagar Carrick í starfi verði brátt taldir.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗