Leita leiða til að bæta aðgengi að heitu vatni

Kröftug uppbygging hefur átt sér stað í Sveitarfélaginu Ölfusi undanfarin ár, ekki síst fiskeldisfyrirtækja. mbl.is/Sigurður Bogi

Bæjarráð sveitarfélagsins Ölfuss samþykkti á fundi sínum í síðustu viku viljayfirlýsingu sem kveður á um að hefja undirbúning samstarfs sveitarfélagsins og orkufyrirtækisins Reykjavík Geothermal um að kanna forsendur hitaveituverkefnis í Ölfusi. Markmiðið er að leita leiða til að bæta aðgengi fyrirtækja og íbúa að heitu vatni og stuðla að ávinningi nærsamfélagsins af nýtingu jarðhitaauðlinda, í samræmi við orku- og auðlindastefnu Ölfuss, að því er fram kemur í fundargerð.

Segir þar að til skoðunar sé að sérstakt hitaveituverkefni nærri Þorlákshöfn, með uppsettu varmaafli undir 50 megavattstundir. Verði sá kostur ekki fyrir valinu sé einnig hugsanlegt að tengja hitaveituverkefnið við verkefni Reykjavík Geothermal í Bolaöldu. Hyggjast aðilar kanna framboð og eftirspurn, fjárhagslega hagkvæmni, tæknilegar forsendur og mögulega staðsetningu verkefnisins.

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅