Ari krefst svara: „Enga trú á að Reykvíkingar myndu samþykkja slíkt rugl“
Ari Edwald, borgarfulltrúi Miðflokksins, gagnrýnir harðlega óvissu um kostnað og fjármögnun borgarlínunnar. Hann telur að nýir skattar vegna verkefnisins geti kostað heimili í efri og eystri byggðum Reykjavíkur allt að hálfa milljón króna á ári og krefst þess að stjórnvöld sýni á spilin.
Í samtali við Morgunblaðið í dag segir Ari að borgarlínuverkefnið virðist vera komið á sjálfstýringu og að almenningur hafi ekki fengið skýr svör um hvernig greiða eigi fyrir framkvæmdirnar.
„Eina lausnin sem ríkið hefur uppi í erminni er skattlagning og miðað við það sem við höfum heyrt af vinnu í ráðuneytum, má búast við því að umferðargjöld, t.d. um Ártúnsbrekku, hlaupi á hundruðum króna fyrir hverja ferð,“ segir Ari.
Ari gagnrýnir jafnframt að ekki hafi verið gerð grein fyrir heildarkostnaði verkefnisins og telur óraunhæft að tekjur af sölu Keldnalandsins muni standa undir verulegum hluta hans á næsta áratug.
Hann vill að Reykvíkingar fái að greiða atkvæði um framtíð borgarlínunnar og hvernig fjármagna eigi framkvæmdirnar.
„Það er algerlega ljóst að ef sú niðurstaða verður lögð fyrir íbúa Reykjavíkur, að borgarlínan megi kosta hvað sem er, að ekki megi leita hagkvæmustu lausna og skattlagningin geti orðið jafnvel hálf milljón á heimili á ári, þá hef ég enga trú á að Reykvíkingar myndu samþykkja slíkt rugl í íbúakosningu,“ segir Ari.
Hann spyr hvers vegna leyndarhyggja ríki um kostnað og fyrirhugaða skattlagningu. „Íbúar Reykjavíkur eiga heimtingu á því að fá að sjá á þessi spil áður en lengra er haldið“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗