Launsonur Schwarzeneggers lætur að sér kveða
Joseph Baena, launsonur Arnolds Schwarzeneggers, fetar í fótspor föður síns. Hann hafnaði í fimmta sæti á sínu fyrsta atvinnumannamóti í vaxtarrækt um helgina.
Baena, sem er 29 ára, keppti í opnum flokki Classic Physique á heimsbikarmóti PNBA í El Segundo í Kaliforníu.
Hann birti myndskeið af keppninni á Instagram og kvaðst afar stoltur af árangrinum, enda væri þetta fyrsta árið sem hann keppti í vaxtarrækt.
„Ég náði markmiðinu sem ég setti mér. Ég veit hvað ég þarf að bæta og hvað þarf til að ná lengra,“ sagði Baena.
Feðgar æfa saman
Baena hefur þegar unnið til nokkurra verðlauna á árinu. Í mars sigraði hann í þremur flokkum á NPC Natural Colorado State-mótinu og mánuði síðar vann hann til gullverðlauna á Iron Gladiator-móti INBA í Kaliforníu.
Hann hefur einnig birt myndir af sér við æfingar með föður sínum, sem vann sjö sinnum titilinn Mr. Olympia á farsælum vaxtarræktarferli.
Baena er sonur Schwarzeneggers og Mildred Baena, fyrrverandi ráðskonu hans. Schwarzenegger á jafnframt fjögur börn með fyrrverandi eiginkonu sinni, Mariu Shriver.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗