Andlát: Gunnar Þórarinsson

Gunnar Þórarinsson, fv. bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ, lést á Hjúkrunarheimilinu Nesvöllum 3. nóvember, 77 ára að aldri. Greint var frá andláti hans í Víkurfréttum.

Gunnar fæddist í Reykjavík 11. apríl 1949 og ólst upp í Vogahverfinu. Foreldrar hans voru hjónin Þórarinn Jens Óskarsson (1915-2009), húsasmíðameistari í Reykjavík, og Guðlaug Sæmundsdóttir (1921-2009), húsmóðir og saumakona.

Gunnar lauk landsprófi frá Vogaskóla og stúdentsprófi frá MR árið 1969. Hann útskrifaðist sem húsasmiður frá Iðnskólanum í Reykjavík 1972, en hann var í lærlinganámi hjá föður sínum samhliða háskólanámi. Árið 1975 lauk hann cand.oecon.-gráðu í viðskiptafræði frá HÍ.

Að loknu námi starfaði Gunnar hjá Verðlagsskrifstofunni um tíma og kenndi viðskiptagreinar við Fjölbrautaskóla Suðurnesja í 15 ár. Hann stofnaði og rak fyrirtækið Rekstrarþjónustuna um langt árabil ásamt eiginkonu sinni. Gunnar var bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ í 12 ár, frá 2010-2022, fyrst fyrir Sjálfstæðisflokkinn og síðan bæjarmálaaflið Frjálst afl sem hann stofnaði ásamt fleirum árið 2014. Gunnar gegndi embætti forseta bæjarstjórnar 2010-2011 og var formaður bæjarráðs 2011-2014. Þá var hann formaður stjórnar HS veitna hf. árin 2015-2019.

Gunnar var mjög virkur innan íþróttahreyfingarinnar. Lék m.a. knattspyrnu og handbolta með Fram, Breiðabliki og Njarðvík, tók sæti í stjórn knattspyrnudeildar UMFN árið 1976 og var formaður 1982-1988. Þá var hann formaður Íþróttabandalags Suðurnesja 1979-1984 og sat í stjórn körfuknattleiksdeildar UMFN frá 1996-1998. Gunnar var formaður Golfklúbbs Suðurnesja 2002-2008 og hlaut ýmsar viðurkenningar fyrir störf sín í íþróttahreyfingunni, m.a. silfurmerki KSÍ, starfsmerki UMFÍ og gullmerki með lárviðarsveig UMFN. Þá sat hann í sóknarnefnd Ytri-Njarðvíkurkirkju í mörg ár.

Eftirlifandi eiginkona Gunnars er Steinunn Sighvatsdóttir, f. 1950, hárgreiðslumeistari og bókari. Börn þeirra eru þrjú; Guðni Þór, f. 1971, Sighvatur Ingi, f. 1975, og Guðlaug Sunna, f. 1979. Barnabörnin eru 12 og eitt barnabarnabarn.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅