Hætta við að slíta samstarfinu fyrir austan

KFA og Höttur hafa tilkynnt að félögin séu hætt við að slíta samstarfi sínu í meistaraflokki og 2. flokki kvenna, eins og áður var greint frá.

Sameiginleg fréttatilkynning KFA og Hattar rekstrarfélags (RH)

Stjórnir KFA og Hattar Rekstrarfélags hafa, að loknum viðræðum síðustu daga, ákveðið að halda áfram samstarfi félaganna um meistaraflokk og 2. flokk kvenna í knattspyrnu á grundvelli aðildarsamnings félaganna. RH dregur því til baka uppsögn á aðildarsamningi félaganna.

Bréf RH vakti umræðu í samfélaginu um framtíð samstarfsins og varð tilefni til samtals milli stjórna félaganna. Í þeim viðræðum náðist samkomulag um að halda samstarfinu áfram, vinna saman að því að einfalda umgjörð þess og skýra betur verkaskiptingu.

Stjórnir RH og KFA vilja þakka öllum þeim sem hafa komið að starfi og uppbyggingu kvennaknattspyrnunnar á Austurlandi kærlega fyrir þeirra störf. Stjórnirnar hlakka til að vinna áfram með því fólki sem hefur staðið að starfinu. 

Liðið mun vera skráð til leiks á Íslandsmóti undir nafninu Höttur/KFA í bæði meistaraflokki og 2. flokki eftir að hafa verið á undanþágu með nafnið FHL undanfarin ár.

Austurland, 9. nóvember 2026.

Stjórn KFA og stjórn Hattar Rekstrarfélags.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅