Segir FBI rannsaka Huang: „Hann þjáist mjög mikið“

Huang og Trump á samsettri mynd.

Huang og Trump á samsettri mynd. AFP

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir bandarísku alríkislögregluna vera að rannsaka hneykslið í kringum Jensen Huang, forstjóra Nvidia.

Trump sýndi Jensen Huang, forstjóra Nvidia, samúð í gær og sagði hann þjást mjög mikið og að hann hefði ekki vitað að kona sem hann átti í ástarsambandi við væri meintur kínverskur njósnari.

Trump vék sér jafnframt undan spurningunni um hvenær hann hefði sjálfur vitað af upplýsingum leyniþjónustunnar sem tengdu forstjórann við Alice Huang, kínverskan stjórnanda sem er sögð hafa komið upplýsingum til Peking.

Bandaríkjaforseti sagðist hafa rætt við Huang fyrr í gær „til að athuga hvort honum liði ekki vel“ og kallaði tæknijöfurinn, sem er fæddur í Taívan, „frábæran náunga“.

Jensen Huang í Hvíta húsinu.

Jensen Huang í Hvíta húsinu. AFP/Brendan Smialowski

„Ég spurði hann spurningarinnar: „Hafðirðu einhverja hugmynd um að hún væri njósnari?“ Hann sagði: „Ég hafði enga hugmynd um að hún væri njósnari,“ og ég trúi honum svo sannarlega,“ sagði Trump við fréttamenn í Hvíta húsinu.

Hann bætti við: „Ég vona að það sé ekkert vandamál. Ég tel að hann þjáist mjög mikið ... ekki síst vegna fjölskyldu sinnar, eiginkonu sinnar, sem hann elskar, og fjölskyldunnar. En hann þjáist svo sannarlega.“

Jensen Huang sendi starfsmönnum Nvidia skilaboð á sunnudag þar sem hann viðurkenndi að hafa átt í ástarsambandi og bað bæði fjölskyldu sína og starfsfólk fyrirtækisins afsökunar.

Trump á blaðamannafundi í Hvíta húsinu.

Trump á blaðamannafundi í Hvíta húsinu. AFP/Mandel Ngan

Vissi ekkert um ásakanirnar

Trump sagðist ekki hafa vitað af ásökununum þegar Huang fylgdi honum til Kína í maí. Huang er lykilmaður í gervigreindarbyltingunni og stendur Bandaríkjaforseta nærri.

„Nei, ég heyrði ekki af þessu þá. En margir hafa heyrt af þessu,“ sagði Trump.

Huang hefur einnig sótt fjölda viðburða í Hvíta húsinu, þar á meðal opinbera heimsókn Xi Jinping, forseta Kína, í september.

Trump vildi þó ekki tilgreina hvenær honum hefði verið sagt frá þessu.

„Ekki fyrir svo löngu. Við munum skoða málið, ég veit að FBI er að skoða það í tengslum við eitthvað annað, og ég held að hann muni standa vel,“ sagði Trump.

Þegar AFP óskaði eftir skýringu á ummælum forsetans um hvort rannsókn á Huang stæði yfir vildi FBI ekki tjá sig í gær.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅