Svaf á gólfinu hjá foreldrum sínum frá 8 til 16 ára - Skildi af hverju tveimur árum seinna

Spencer Ali svaf á gólfinu í herbergi foreldra sinna á hverri nóttu frá átta til sextán ára. Fyrir flesta unglinga hljómar þetta hræðilega en Spencer skildi aldrei þrá vina sinna um sjálfstæði og frið frá foreldrum. Hann vildi sofa á gólfinu allar nætur.

„Ég vissi að kvöldrútínan mín var ekki hefðbundin, en ég skildi ekki af hverju hún var svona fyrr en ég varð átján ára. Þá var ég greindur með einhverfu. Þremur árum seinna var ég líka greindur með ADHD.

Hann opnar sig um málið í grein á Newsweek, en Spencer hefur verið ötull talsmaður einhverfu og ADHD á samfélagsmiðlum um árabil.

Í dag er Spencer 23 ára og líf hans er allt annað. „Ég sef einn, ferðast einn þegar ég þarf þess, rek eigið fyrirtæki og elska vinnuna mína. Ég legg mig fram við að skilja sjálfan mig og þroskast, en til þess að sjá hversu langt ég er kominn þarf ég stundum að líta til baka.“

Spencer segir að hann hafi verið hræddur við að sofa einn þegar hann var yngri.

„Ég var dauðhræddur um að verða rænt, missa meðvitund og vera varnarlaus einn inni í herbergi. Hræðslan varð svo mikil að eina leiðin til að ég upplifði mig öruggan var að sofa á herbergisgólfi foreldra minna. Ég sagði samt engum vinum mínum frá því. Þetta var leyndarmál sem mér fannst vandræðalegra með aldrinum,“ segir Spencer.

Hann fékk góðan stuðning frá foreldrum og faglega aðstoð en á þeim tíma var talið að hann væri með kvíða. Hann gekkst undir hugræna atferlismeðferð sem skilaði litlum árangri.

Spencer segir að það hafi breytt öllu að fá greiningarnar. Hann lærði í kjölfarið að skilja eigin þarfir betur og aðlaga líf sitt að eigin takti.

Spencer er nú 23 ára, sjálfstæður og í eigin rekstri. Hann ræðir opinskátt um líf sitt, erfiðleika og sigra á TikTok.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅