Hjólar í leikmenn Manchester United

Helgi Fannar Sigurðsson

Þriðjudaginn 10. nóvember 2026 07:00

Chicharito í leik með Sevilla.

Javier Hernandez, betur þekktur sem Chicharito, gagnrýnir leikmenn Manchester United harðlega vegna slæms gengis liðsins.

United gerði 4-4 jafntefli við Aston Villa um helgina og situr í fallsæti ensku úrvalsdeildarinnar. Hernandez, sem lék með United í fimm ár, var á Old Trafford og ræddi stöðuna eftir leik.

„Þegar ég var hér snerist þetta ekki um hvort Sir Alex Ferguson hefði gert rétt eða rangt taktískt. Leikmennirnir þurftu einfaldlega að standa sig. Þegar flautað er til leiks getur stjórinn ekki gert mikið meira.

Þú verður að vera til í að deyja fyrir þetta félag. Ég hef heyrt marga kvarta undan taktík eða leikskipulagi en á mínum tíma hér var þetta einfalt. Ef þú stóðst þig ekki kom einhver annar í staðinn,“ segir Chicharito.

„Við þurfum að vera gagnrýnni á leikmennina. Ef þú ert hjá Manchester United þarftu að sýna hvers vegna þú átt heima hér, sama í hvaða stöðu þú spilar eða hvar stjórinn setur þig.“

Þrátt fyrir þessi orð Chicharito er talið að Carrick fái sparkið á næstu dögum.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅