Afbrigðileg hegðun við sundlaug
Lögreglunni var tilkynnt um afbrigðilega hegðun ungmenna við sundlaug í hverfi 220 í Hafnarfirði.
Eftir gott samtal við lögreglu héldu þau sína leið, að því er segir í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna verkefna frá klukkan 17 í gær til kl. 5 í morgun.
Tilkynnt var um ólæti ungmenna við sundlaug í hverfi 201 í Kópavogi. Ungmennin voru farin þegar lögreglu bar að garði.
Tilraun til innbrots og öskrandi maður
Lögreglunni var tilkynnt um tvo einstaklinga að reyna að brjótast inn. Atvikið gerðist í Laugardalnum.
Sömuleiðis var tilkynnt um öskrandi mann í Vesturbænum í Reykjavík. Hann fannst ekki þrátt fyrir leit.
Ölvuðum einstaklingi var jafnframt vísað á brott af veitingastað í hverfi 221 í Hafnarfirði.
Bílvelta varð í Múlahverfinu í Reykjavík. Enginn var fluttur á slysadeild.
Einnig var tilkynnt um eld í ruslatunnu í Árbænum.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
