Morgunverður sem bragðast eins og Bounty

Það er notalegt að vakna þegar morgunverðurinn bíður tilbúinn í ísskápnum. Þessi chiabúðingur með kókos og súkkulaði minnir á Bounty. Clay Banks/Unsplash/Aðsend

Kókos og súkkulaði eru aðalhráefnin í þessum morgunverði sem minnir á hið sívinsæla Bounty. Undir stökku súkkulaðilagi er mjúkur chiabúðingur með grískri jógúrt, kókosmjöli og vanillu.

Jana segir að ef við elskum kókos jafn mikið og hún gerir þá verðum við að prófa þennan morgunmat. Ljósmynd/Aðsend

Uppskriftin er frá Jönu Steingrímsdóttur sem deilir henni á vefsíðu sinni. Búðinginn má útbúa kvöldið áður og geyma í kæli svo morgunmaturinn sé tilbúinn þegar dagurinn hefst.

Bounty chiabúðingur

Jana segir gríska jógúrt prótínríka og góða fyrir meltinguna og að chia-fræin séu rík af Omega-3 sem er gott fyrir hjartaheilsuna. Ljósmynd/Aðsend

Chiabúðingur

  • ½ dl chia-gel, sjá aðferð hér að neðan
  • ¼ bolli kókosmjöl
  • 200 ml hrein laktósafrí grísk jógúrt
  • 1–2 msk. akasíuhunang eða önnur sæta
  • 1 tsk. vanilla
  • Örlítið salt

Súkkulaðilag

  • 30 g dökkt súkkulaði
  • 1 tsk. kókosolía
  • Svolítið kókosmjöl til að dreifa yfir

Chia-gel

  • 2 msk. chiafræ
  • 1 dl vatn

Aðferð

Þessi morgunverður er einfaldur og bragðgóður.

Þessi morgunverður er einfaldur og bragðgóður. Ljósmynd/Aðsend

  1. Byrjið á að útbúa chia-gelið. Setjið chiafræ og vatn í krukku, lokið henni og hristið vel.
  2. Látið standa í 5 mínútur og hristið aftur til að koma í veg fyrir kekki.
  3. Setjið krukkuna í kæli og látið standa í um 15 mínútur. Mælið síðan ½ dl af gelinu í búðinginn.
  4. Hrærið saman chia-geli, kókosmjöli, grískri jógúrt, hunangi, vanillu og salti. Setjið í skál eða glas.
  5. Bræðið súkkulaðið með kókosolíunni og hrærið þar til blandan er slétt.
  6. Hellið súkkulaðiblöndunni yfir búðinginn og dreifið svolitlu kókosmjöli yfir.
  7. Setjið í kæli og látið súkkulaðið harðna áður en búðingurinn er borinn fram.

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅