Afbrigðileg hegðun við sundlaug

Lögreglan hafði í ýmsu að snúast á vaktinni.

Lögreglan hafði í ýmsu að snúast á vaktinni. mbl.is/Ólafur Árdal

Lögreglunni var tilkynnt um afbrigðilega hegðun ungmenna við sundlaug í hverfi 220 í Hafnarfirði.

Eftir gott samtal við lögreglu héldu þau sína leið, að því er segir í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna verkefna frá klukkan 17 í gær til kl. 5 í morgun.

Tilkynnt var um ólæti ungmenna við sundlaug í hverfi 201 í Kópavogi. Ungmennin voru farin þegar lögreglu bar að garði.

Tilraun til innbrots og öskrandi maður

Lögreglunni var tilkynnt um tvo einstaklinga að reyna að brjótast inn. Atvikið gerðist í Laugardalnum.

Sömuleiðis var tilkynnt um öskrandi mann í Vesturbænum í Reykjavík. Hann fannst ekki þrátt fyrir leit.

Ölvuðum einstaklingi var jafnframt vísað á brott af veitingastað í hverfi 221 í Hafnarfirði.

Bílvelta varð í Múlahverfinu í Reykjavík. Enginn var fluttur á slysadeild.

Einnig var tilkynnt um eld í ruslatunnu í Árbænum.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅