Viðurkennir að hafa rætt rekstrarmál við stjórnina

Daði Már Kristófersson í fyrirspurnatíma í þingsölum í gær.

Daði Már Kristófersson í fyrirspurnatíma í þingsölum í gær. mbl.is/Eyþór

Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra viðurkenndi í fyrirspurnatíma á Alþingi í gær að hafa rætt tiltekin rekstrarmál við stjórn Landsvirkjunar á fundi án forstjóra fyrirtækisins 6. janúar. Fram til þess hafði hann sagt að fundir sínir með stjórninni hefðu snúist um almenna stjórnarhætti en rekstrarmálefni ekki verið til umræðu.

Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður Sjálfstæðisflokksins spurði ráðherrann hvers vegna hann hefði ekki greint þinginu frá umræðum um greiðslu vegna sölu Landsnets og ágreining fyrirtækjanna, eins og fundargerð hefði borið með sér.

„Varðandi þau atriði sem hv. þingmaður nefndi voru þetta spurningar sem ég nýtti tækifærið til að bera fram við stjórn Landsvirkjunar einungis í upplýsingaskyni og snúa að þessum tveimur atriðum: annars vegar lokagreiðslu á kaupverði Landsnets og hins vegar um hver staðan væri á samskiptum Landsnets og Landsvirkjunar,“ svaraði Daði Már.

Hann sagði boðað fundarefni hafa verið almennar áherslur í stjórnun og eigendastefnu, en hann hefði nýtt tækifærið til að ræða hitt.

Í fundargerðinni hafði áður komið fram umræða um ágreining Landsvirkjunar og Landsnets, lög um Landsvirkjun og skuldabréf sem Landsvirkjun átti eftir sölu Landsnets, í tengslum við arðgreiðslu.

Þrisvar spurt án skýrra svara

Um þetta spurði Hildur Sverrisdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins þrívegis við umræðu um skýrslu Daða Más um Landsvirkjunarmálið á miðvikudag í liðinni viku. Hún spurði hvort hann teldi umræðu um Landsnet, skuldabréf og arð falla undir almenna stjórnarhætti. Bergþór Ólason og Jens Garðar Helgason spurðu einnig sérstaklega um það, án þess að ráðherra svaraði þeim efnislega, eins og hann gerði loks í gær.

Ráðherra er óheimilt að ræða einstök mál við stjórnina með þessum hætti. Slík afskipti ganga gegn lögbundinni verkaskiptingu og kröfunni um armslengd milli ríkisvaldsins og fyrirtækisins. Jens Garðar gagnrýndi jafnframt samskiptin með vísan til samkeppnislaga.

Daði Már sagði hins vegar í síðustu viku að málefni rekstrar fyrirtækjanna hefðu ekki verið rædd. Hann felldi þó umræðu um samskipti ríkisaðila undir almennar áherslur ríkisins sem eiganda og ítrekaði að daglegur rekstur hefði ekki verið til umræðu.

Annað kom í ljós í gær, en með skýringu á framgöngunni: „Að spyrja spurninga varðandi reksturinn er eðlilegur hluti af þeim fundum.“

Guðlaugur Þór spurði hvers vegna ráðherrann hefði ekki sagt frá þessu fyrr, en fékk ekki svar.

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag. 

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅