Landverðir mótmæla passanum

Magnús Hallur Jónsson,

Magnús Hallur Jónsson, mbl.is/Sigurður Bogi

„Við erum undrandi yfir því hversu illa og lítið unnið frumvarpið um náttúrupassann virðist vera,“ segir Magnús Hallur Jónsson, formaður Landvarðafélags Íslands.

Frumvarp atvinnuvegaráðherra um náttúrupassa, aðgangseyri sem útlendingar koma til með að greiða á Þingvöllum og við Geysi og Gullfoss, mælist misjafnlega fyrir. Margir hafa mótmælt, nú landverðir.

„Setja má út á margt í frumvarpinu um náttúrupassann, svo sem hversu lítið er farið út í framkvæmdina. Við viljum ekki að landverðir standi í því að rukka fólk um skilríki og passa, hvað þá sekta. Blessunarlega er það Ferðamálastofa sem ætlar að annast innheimtu samkvæmt þessu frumvarpi, en ekki Þjóðgarðurinn á Þingvöllum eða Náttúruverndarstofnun. Það ber að taka fram að landverðir starfa ekki hjá Ferðamálastofu,“ segir Magnús Hallur. 

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag. 

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅