Heimsmeistari látinn 31 árs
Lauri Happonen, finnski rafíþróttamaðurinn sem var þekktur undir nafninu Cyanide, er látinn, 31 árs að aldri, samkvæmt Ilta Sanomat.
Happonen átti þátt í því að Fnatic vann fyrsta heimsmeistaramótið í League of Legends árið 2011. Dánarorsök hefur ekki verið gefin upp.
Þegar hann rifjaði upp sigurinn í viðtali við áðurnefndan miðil árið 2018 sagði hann að viðurkenningin hefði styrkt sjálfsmat hans, sem áður hafði verið lágt.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗