Fór með Jesú, Maríu og Jósef í bíltúr á nýjum BMW

Það er ekki á hverjum degi sem Jesús, María mey og Jósef fá far í splunkunýjum BMW. Það gerðist þó þegar nýr og glæsilegur BMW iX3 var prófaður. Marta María Winkel tók til í bílskúrnum og fór í Sorpu með jólaskraut sem þjónaði ekki lengur tilgangi og mælti sér mót við útvarpsstjörnuna Rikka G. og færði honum Betlehem-styttur að gjöf en hann hafði lengi dreymt um að eignast slíkt jólaskraut. 

BMW iX3 er 100% rafmagnsbíll sem sameinar rúmgóðan fjölskyldubíl og sportlega aksturseiginleika. Bíllinn er lipur í akstri og skemmtilega hannaður. 

„Hann er snaggaralegur. Maður líður ekki eins og maður sé á einhverju flugmóðurskipi. Hann er nettur þó að það sé mikið innra rými í honum,“ segir reynsluökumaðurinn sem þekkir vel til BMW X3 enda átti hún eitt sinn slíkan jeppa.

Betlehem-styttur í skottinu

Áður en lagt var af stað þurfti að koma við í bílskúrnum og finna eitthvað til að flytja. Þar leyndist meðal annars myndarlegt Betlehem-styttusafn sem innihélt Jesú, Maríu mey og Jósep ásamt öðrum íbúum fjárhússins. Það þurfti að koma styttunum til nýs eiganda sem heitir Rikki G. og því tilvalið að athuga hvort stytturnar kæmust fyrir í skottinu. Það reyndist engin fyrirstaða að koma þeim fyrir og það var líka pláss fyrir heimtilbúið jólatré sem átti að fara í Sorpu.

Bíll fyrir einmana fólk 

Það var þó ekki bara skottið sem heillaði heldur einnig tæknin í bílnum. Mælaborðið er vel hannað en þar er hægt að fylgjast með hraða, hleðslu, staðsetningu, veðri og ýmsu öðru sem gott er að vita. Í mælaborðinu er um það bil allt sem meðalmanneskja þarf að vera meðvituð um. Einn tæknifídus þótti þó sérstaklega skemmtilegur en í bílnum er stafrænn aðstoðarmaður sem hægt er að spjalla við og biðja um að framkvæma ýmis verkefni.

„Ég myndi telja, þó ég skilgreini iX3 sem fjölskyldubíl, að þetta sé í rauninni bíll sem myndi henta mjög vel fyrir einmana fólk. Það er bara hægt að tala stöðugt við aðstoðarmanninn og láta hann græja hitt og þetta,“ segir Marta María. 

Sorpa og lúgusjoppa ómissandi stopp

Leiðin lá næst í Sorpu.

„Maður fær illt í hjartað yfir ofgnótt heimsins en á sama tíma er svo gott að geta losað sig við það sem maður vill ekki eiga lengur,“ segir Marta María. 

Þar var meðal annars komið með jólaföndur sem reyndist í svo góðu ástandi að því var beint í Góða hirðinn í stað þess að henda því.

Þegar búið var að losa sig við óþarfa dót var kominn tími á að verðlauna sig með heimsókn í lúgusjoppu í Garðabæ.

„Það er náttúrulega ekki hægt að vera á svona bifreið og fara ekki í lúgusjoppu.“

Allt að 805 kílómetra drægni

Eitt af því sem skiptir mestu máli þegar kemur að rafmagnsbílum er drægnin. Samkvæmt upplýsingum sem fram koma í reynsluakstrinum er hægt að fá BMW iX3 með allt að 805 kílómetra drægni.

Íslenskar aðstæður geta þó haft áhrif á hversu langt bíllinn kemst á einni hleðslu enda geta kuldi, snjór og vetrarfærð dregið úr drægninni.

Það breytir þó ekki því að bíllinn hentar vel í daglegt amstur eins og fara í Sorpu og sinna erindum um leið og akstursins var notið.

Betlehem komið í góðar hendur

Síðasta verkefni dagsins var að koma Betlehem-fjárhúsinu til nýs eiganda sem hafði óskað sér að eignast slíkt jólastyttusafn. 

Viðtakandinn tók glaður á móti Jesú, Maríu og Jósef en áttaði sig fljótt á því að það gæti orðið töluvert púsluspil að koma öllu fyrir heima hjá sér.

„Möguleiki á skilnaði fyrir jól, en kemur í ljós,“ sagði Rikki G. kíminn þegar hann sá umfangið á skreytingunni.

Þegar öllum erindum var lokið var ekki annað eftir en að skila bílnum. Það reyndist þó hægara sagt en gert.

„Ég er nú svolítið í trega að þurfa að skila honum. Það er nú ekki alveg nógu góður díll,“ sagði Marta María. 

Það er óhætt að segja að BMW iX3 hafi staðist þetta óvenjulega hversdagspróf með prýði. Betlehem-fjárhúsið komst á áfangastað, óþarfa dót fékk nýtt hlutverk og ökumaðurinn hefði helst viljað halda lúxuskagganum aðeins lengur.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅