Hálf milljón á ári í nýjan skatt
„Það er ekki óvarlegt að ætla að nýir skattar á hvert heimili í efri og eystri byggðum Reykjavíkur vegna borgarlínunnar geti orðið hálf milljón á hverju ári,“ segir Ari Edwald, borgarfulltrúi Miðflokksins í samtali við Morgunblaðið.
Hann segir að eina lausnin sem ríkið hafi til að fjármagna borgarlínuverkefnið sé að skattleggja almenning með umferðargjöldum og nefnir þar Ártúnsbrekku sem líklegt dæmi þar sem slík gjöld yrðu innheimt af þeim sem aka þá leið og gagnrýnir að ekki verið sýnt á spilin varðandi endurskoðun verkefnisins í heild.
Ari vill að Reykvíkingar fái að segja sína skoðun á því og taka endanlega afstöðu til verkefnisins í íbúakosningu sem og til þess hvernig kostnaðurinn verður rukkaður af íbúum Reykjavíkur.
Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗