Tilfinningaþrungin stund í Kraká
Tugir þúsunda tóku þátt í þögulli göngu í Kraká í kvöld til að heiðra minningu fórnarlamba skotárásarinnar í pólsku borginni á laugardag.
Forseti og forsætisráðherra Póllands leiddu gönguna ásamt borgarstjóra Kraká.
Gangan hófst á torginu, þar sem árásin átti sér stað, og staldraði fólk þar við blómum skreyttan minnisvarða til heiðurs fórnarlömbunum.
Rannsökuð sem hryðjuverk
Sex létust og fimmtán særðust þegar árásarmaður keyrði inn á fjölfarið torg og hóf þar skothríð. Eru voðaverkin rannsökuð sem hryðjuverk og þá var tveggja daga þjóðarsorg lýst yfir í Póllandi í gær.
Auk þeirra sem voru skotnir í miðborginni fundust þrír látnir heima hjá hinum grunaða, voru það systir hans og foreldrar.
Árásarmaðurinn skiptist á byssuskotum við lögreglumenn áður en hann var handtekinn og var hann fluttur á spítala með skotsár. Hann gekkst undir þrjár skurðaðgerðir en lést af sárum sínum í morgun.
Donald Tusk forsætisráðherra Póllands, Karol Nawrocki forseti Póllands og Lukasz Gibala borgarstjóri Kraká. AFP
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

