Tilfinningaþrungin stund í Kraká

Fólk staldraði við blómum skreyttan minnisvarða á torginu þar sem árásin átti sér stað. AFP

Tugir þúsunda tóku þátt í þögulli göngu í Kraká í kvöld til að heiðra minningu fórnarlamba skotárásarinnar í pólsku borginni á laugardag.

Forseti og forsætisráðherra Póllands leiddu gönguna ásamt borgarstjóra Kraká.

Gangan hófst á torginu, þar sem árásin átti sér stað, og staldraði fólk þar við blómum skreyttan minnisvarða til heiðurs fórnarlömbunum. 

Rannsökuð sem hryðjuverk

Sex létust og fimmtán særðust þegar árásarmaður keyrði inn á fjölfarið torg og hóf þar skothríð. Eru voðaverkin rannsökuð sem hryðjuverk og þá var tveggja daga þjóðarsorg lýst yfir í Póllandi í gær.

Auk þeirra sem voru skotnir í miðborginni fundust þrír látnir heima hjá hinum grunaða, voru það systir hans og foreldrar.

Árásarmaðurinn skiptist á byssuskotum við lögreglumenn áður en hann var handtekinn og var hann fluttur á spítala með skotsár. Hann gekkst undir þrjár skurðaðgerðir en lést af sárum sínum í morgun.

Donald Tusk forsætisráðherra Póllands, Karol Nawrocki forseti Póllands og Lukasz Gibala borgarstjóri Kraká. AFP

Sex manns létust og fimmtán særðust í árásinni.

Sex manns létust og fimmtán særðust í árásinni. AFP

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅