NASCO varar við áhrifum laxalúsar frá eldi
Lítill sjóbirtingur sem veiddist í Skotlandi. Á honum voru 20 laxalýs. Veiðistaðurinn var langt frá öllum eldiskvíum. Nú hefur verið sýnt fram á að afkvæmi laxalúsar berast óravegalengd frá sjókvíunum. Ljósmynd/Ronnie Fraser
Aukin vitneskja um hegðun laxalúsar bendir til þess að hún drepi meira af laxaseiðum en áður var talið. NASCO hefur varað við þessu og rannsóknir við Skotland benda í sömu átt.
„Raunveruleg áhrif laxalúsar á stofnstærð laxa gæti verið meiri en talið hefur verið fram til þessa,“ segir í helstu niðurstöðum óháðs hóps vísindamanna, sem unnið hefur fyrir NASCO. Skammstöfunin stendur fyrir Nort Atlantic Salmon Conservation Organization. Ísland er aðili að NASCO ásamt Kanada, Bandaríkjunum, Evrópusambandinu, Danmörku fyrir hönd Færeyja og Grænlands, Noregi, Rússlandi, og Bretlandseyjum. Auk þess á Frakkland áheyrnarfulltrúa á fundum ráðsins.
Niðurstaðan sem vitnað er til hér að ofan er kynnt í nýjasta fréttabréfi NASCO. Settir voru saman tveir hópar vísindamanna til að fjalla um, annars vegar áhrif laxalúsar, frá sjókvíaeldi á villta laxastofna og hins vegar erfðamengun sem villti laxinn hefur orðið fyrir.
Það sem nú hefur komið fram er hversu mikil útbreiðsla laxalúsarinnar er og hversu langt út frá sjálfum sjókvíunum hún nær. Í miklum þéttleika í kvíunum getur laxalúsin fjölgað sér hratt og sleppir eggjum sínum í milljarðavís. Fram til þessa hefur fyrst og fremst verið horft til næsta nágrennis kvíanna. En nú hafa vísindamenn bent á að dreifing lúsalirfanna er tugi og jafnvel hundruð kílómetra frá sjálfum kvíunum. Þannig geta lirfur lúsarinnar ferðast tugi kílómetra og hafstraumar og vindar ýkt það ferðalag hratt og örugglega. Lúsalirfur geta lifað í þrjár vikur í leit að hýsli. Magnið frá sjókvíum af lúsalirfum getur orðið gríðar mikið þegar lúsafaraldrar verða í kvíum. Þannig hefur verið sýnt fram á það í Skotlandi að seiði sem ganga til sjávar og halda á fæðuslóð þurfi að öllum líkindum að synda í gegnum mikinn þéttleika af slíkum lirfuskýjum á leið sinni. Seiði sem fá á sig lús eiga erfiðara með að lifa af og séu lýsnar nokkrar drepa þær seiðið. Vaxandi umræða er um þessa hættu fyrir villta laxinn. Eins og fyrr segir hefur þessi þáttur ekki verið sá sem menn óttuðust mest þegar kemur að áhrifum sjókvíaeldis á villta laxinn. Laxastofnar Atlantshafsins eru í dag ekki nema þriðjungur af því sem þeir voru fyrir hálfri öld. Sífellt fleiri tengja þá miklu fækkun við uppgang sjókvíaeldis.
Vísindamenn á vegum WildFish samtakanna í Bretlandi sem berjast fyrir framtíð villta laxins útbjuggu líkan af ferðalagi laxalúsar. Hafstraumar og vindur spila stórt hlutverk. Kort/WildFish
Dreifing laxalúsar frá sjókvíum könnuð
Fram til þessa hefur hér á landi fyrst og fremst verið horft til erfðamengunar þegar settar hafa verið fram áhyggjur af sjókvíaeldi. Horft hefur verið til strokulaxa sem leitað hafa upp í laxveiðiár. Minna hefur verið rætt um áhrif laxalúsar enda mögulega vantað vitneskju. Nú hafa menn horft til Norðvesturlands og hversu erfitt uppdráttar laxastofnar þar hafa átt síðustu ár og ekki síst í sumar þegar sjá mátti bata í laxagöngum víða um land og sérstaklega á Vesturlandi. Þarna er ekki langt á milli í loftlínu en seiði sem ganga út úr ám á Norðvesturlandi fara að öllum líkindum fyrir Vestfirðina á leið sinni á fæðuslóð. Hvað mætir þeim þar? Hafrannsóknastofnun hefur haft áhyggjur af stöðunni á Norðvesturlandi, eins og Guðni Guðbergsson hefur sagt í viðtalsþáttum hér á mbl.is. Í vor var það gert í fyrsta skipti að kanna hvort laxalús eða lirfur hennar væru mögulega einn af farartálmum seiða sem fara um þetta svæði. Fljótlega munu niðurstöður úr þeim athugunum líta dagsins ljós.
WildFish eru samtök á Bretlandseyjum sem berjast fyrir framtíð villta laxins. Samtökin fengu vísindamenn til að útbúa líkan sem sýnir dreifingu á lirfum laxalúsarinnar við strandlengju Skotlands. Lengi vel hefur eldisiðnaðurinn þar haldið því fram að þarna gætu ekki verið tengsl á milli. Sjókvíeldið er staðsett við Vesturströndina en helstu laxveiðiár landsins eiga ósa á Austurströndinni. Líkanið sem sýnir dreifingu lúsarinnar felldi þau rök því ferðalag lúsaskýsins er mun lengra en áður var talið. Miðað við þetta líkan er nokkuð ljóst að veruleg hætta er á að skosku seiðin eigi lífshættulegt stefnumót við lirfurnar á leið sinni á fæðuslóð.
Í frétt á heimsíðu sinni vitnar WildFish í helsta ráðgjafa skosku ríkisstjórnarinnar þegar kemur að málefnum sjávar og að hann hafi tekið undir þær megin niðurstöður að laxalús frá sjókvíum gæti hafi mikil áhrif á laxastofna. Að sama skapi hafi hann hafnað þeim röksemdum um að niðurstöðurnar væru misvísandi og að verið sé að ýkja möguleg áhrif á laxastofna. Það væri á hinn bóginn frekar þannig að ólíkar rannsóknir virtust benda í sömu átt að laxalúsin væri að hafa meiri áhrif en áður hefði verið talið. Þá vitnar WildFish til þess að SEPA sem er Umhverfisstofnun Skotlands hafi tekið undir að laxalús frá sjókvíum gæti haft áhrif á stofnstærð villta laxins.
Áfall fyrir laxeldi
Hinn virti fjölmiðill í Bretlandi, The Times birti í morgun grein undir fyrirsögninni “Is there something fishy about UK farmed salmon?” Dæmigerður breskur orðaleikur í fyrirsögn en vitnar til þess að ekki sé allt uppi á borðum þegar kemur að þessum iðnaði á Bretlandseyjum. Í greininni er fjallað um líkanið sem WildFish lét gera og sýnir þessa miklu dreifingu á lúsalirfum. Óhætt er að segja að grein The Times sem skrifuð er af umhverfisritstjóra blaðsins sé gagnrýnin á fjölmarga þætti þegar kemur að eldisiðnaðinum og áhrif hans á villta laxinn í Skotlandi. Í greininni er meðal annars upplýst að Soil Association ákváðu að hætta að votta eldislax í Bretlandi sem „organic“ eða lífrænan. Merki samtakanna mun hverfa af eldislaxaafurðum á næsta ári. Fjölmargir breskir miðlar hafa sagt frá þessu í dag og ljóst að þetta er áfall fyrir laxeldisfyrirtækin.
Annar skýrsluhöfunda skýrslunnar um Spey sem vitnað er til í fréttinni. Hér er Ronnie með vorlax úr ánni Moriston í Skotlandi. Hann er einn af mörgum sem óttast um framtíð villta laxins. Ljósmynd/Ronnie Fraser
Sífellt fleiri beina sjónum sínum að laxalús frá sjókvíaeldi þegar kemur að hnignandi laxastofnum í Norður Atlantshafi. Nýlega kom út skýrsla um niðursveifluna í ánni Spey í Skotlandi þar sem þetta samhengi er skoðað og þar koma fram áhugaverðar upplýsingar. Raunar segja skýrsluhöfundar að skýrslan taki til allra áa í Skotlandi, þar sem ákveðin niðursveifla hefur verið síðastliðin fimmtíu ár.
Áin Spey er vart svipur hjá sjón þegar kemur að laxagöngum í ána, miðað við það sem áður var. Sama má segja um sjóbirting. Þó er Spey ekki á eins slæmum stað og margar aðrar nafntogaðar ár í Skotlandi, eins og Dee og Wye og nefna mætti fleiri. „Samt er þróunin síðan 2010 öll á sama veg,“ segir í skýrslunni.
Bent hefur verið á fjölmargar ástæður til að reyna að skilja hnignun stofnanna og allur lífsferill laxins hefur verið rannsakaður í leit að svörum. Þrátt fyrir mikinn tíma, fjármuni og vinnu við að endurbæta og laga búsvæði laxins heldur hnignunin áfram.
Það kemur alltaf betur og betur í ljós að sjávardvölin er sá þáttur sem ræður mestu og minnst er vitað um. Tölur frá umhverfisverndarsamtökunum – AST (e. Atlantic Salmon Trust) benda til þess að innan við 5% af seiðum nái að snúa aftur sem fullorðinn lax í ána sína. Fleiri rannsóknir telja að þetta hlutfall sé ekki nema um 1%.
„Þetta er ekki flókið“
Skýrsluhöfundar eru ekki vísindamenn. Þeir eru Sam Jarman sem er leiðsögumaður við ána Spey í Skotlandi og félagi hans Ronnie Fraser. „Við byggjum skýrsluna alfarið á opinberum upplýsingum frá yfirvöldum og vísindamönnum. Það sjá allir samhengið. Þar sem eru sjókvíar þar fækkar villtum laxi. Þetta er ekki flókið,“ sagði Sam í samtali við Sporðaköst. Skýrslan ber heitið Understanding the Decline of Spey Salmon.
Sam Jarman er hinn höfundur skýrslunnar sem miðar að því að reyna að skilja af hverju löxum fækkar í ánni Spey. Sam er hér hægra megin á myndinni í veiðileiðsögn í Spey. Ljósmynd/Sam Jarman
Það er erfitt að fylgjast með ferðalagi laxaseiða eftir að þau yfirgefa ána. Við tekur hafið og þær miklu víðáttur sem þar blasa við. Vegna skorts á beinhörðum sönnunargögnum hafa ýmsar kenningar verið settar fram. Uppsjávarflotinn sem er að eltast við kolmuna og makríl og þá horft til þess hvort laxaseiði eða lax geti verið meðafli. Togskip sem beinlínis hafi verið að eltast við fullorðinn lax á fæðuslóð í andstöðu við þá alþjóðlegu samninga sem gilda um verndun laxins. Afrán í sjónum, hvort sem er um að ræða fugla eða seli og hvali, og þá horft til bæði seiða og fullorðinna laxa. Loks taka skýrsluhöfundar fram að áhrif veður- og loftslagsbreytinga sé ekki að fullu þekkt þegar kemur að sjávardvöl laxins.
En eitt liggur fyrir að mati skýrsluhöfunda. Þar sem lax er alinn í opnum sjókvíum, þar á villtur lax erfitt uppdráttar og stofnar hafa minnkað í hlutfalli við aukin umsvif eldisins. Þeir segja reyndar að sönnunargögnin þegar kemur að þessu samspili séu afgerandi. Þeir vitna til þróunar í Noregi, á Bretlandseyjum, Kanada, Chile og Tasmaníu.
Rauða línan sýnir vöxt í sjókvíaeldi í Norður Atlantshafi og hún er hratt upp á við. Bláa línan er veiði á villtum laxi í Skotlandi yfir sama tímabil. Línurit/Ronnie Fraser
Lúsalirfur ferðast allt 350 kílómetra
Í skýrslunni er bent á hvernig hrun í villtum laxastofnum helst í hendur við margföldun á framleiðslu í sjókvíaeldi við strendur Skotlands. Framleiðslan var 600 tonn árið 1980 og komin í 200 þúsund tonn árið 2023.
Sam og Ronnie horfa til líkansins sem nefnt er hér að ofan. Þeir spyrja. Hafa menn velt fyrir sér hversu langt laxalús getur ferðast? Þeir benda á að það fari eftir vindi, sjávarstraumur og hitafari. En samkvæmt þeim upplýsingum sem þeir styðjast við getur ferðalagið verið allt að 200 kílómetrar frá kvínni og upp í 350 kílómetra.
Þeir birta mynd af sjóbirtingi sem veiddist í fyrra á ósasvæði norðarlega við Austurströnd Skotlands. Fiskurinn er 300 grömm og á honum voru 20 laxalýs. Engin sjókví er í næsta nágrenni og mjög langt í næsta sjókvíaeldi.
Skýrslan vitnar til rannsókna þar sem kom í ljós að ein laxalús sem sest á seiði veikir það verulega og dregur stórlega úr líkum þess til að komast af. Þrjár lýs eða fleiri á sama seiðið þýða að það á aðeins 50 prósent líkur á að lifa af. Ellefu lýs og seiðið drepst. Hér er viðhengd frétt sem Sporðköst birtu í janúar sem leið um norska rannsókn sem styður þetta.
Ef að það er staðreynd að laxaseiði þurfa á leiðinni á fæðuslóð að synda í gegnum ský af þessum lirfum á leið sinni er ljóst að afföllin geta orðið mikil. En hvað með sannanir eða staðfestingar á því að þetta sér raunin?
Lúsaeitrið breytti myndinni
Eitt af því sem skýrsluhöfundar horfa til eru svokölluð “SLICE áhrif.” Í byrjun aldarinnar var kynnt til leiks lyfið Emamectin benzoate sem var markaðssett sem SLICE. Efninu var blandað í fóður laxanna og þetta virkaði mjög vel. Lúsin sem var að nærast á laxinum drapst og efninu var fagnað sem kaflaskilum í þessari baráttu. Eins og sjá má á súluritinu hér að neðan þá hafði þetta jákvæð áhrif á villta laxinn og í Spey og í mörgum ám komu fleiri laxar til baka og veiðin jókst á þessum árum.
Í Spey skýrslunni er horft til baka, aftur til ársins 1976. Þeirri fortíð er skipt upp í þrjú tímabil. Tímabilið áður en SLICE kom til sögunnar (1976 – 1999). Þetta tímabil var nokkuð stöðugt þegar kemur að laxagöngum í Spey. Veiðitölur voru á bilinu 6 – 8.500 laxar árlega. Sama var uppi á teningnum með sjóbirtinginn og var veiðin á bilinu 3.500 og upp í 5.000 birtingar árlega. Á þessum tíma voru net enn leyfð í sjó við strendur Skotlands.
Hér getur að líta stangaveiði í Spey frá 1952 þar til í fyrra. Rauða merkingin sýnir SLICE áhrifin. Lyfið var samþykkt árið 2000 en ekki fengust leyfi til notkunar fyrr en árið 2002. Fyrsti seiðaárgangurinn sem fór út og naut SLICE áhrifanna var því árið 2003. Lúsin varð svo ónæm fyrir eitrinu. Súlurit/Sam Jarman
Næsta tímabil er nefnt uppgangur og toppur (2000 – 2010). Þarna var verið að nota lyfið SLICE og eins fyrr segir virkaði það vel. Þarna jókst aftur ganga villtra laxa í Spey og tengja skýrsluhöfundar þá aukningu við SLICE áhrifin. Veiðin á þessum árum var góð og stöðug og minnti á gullaldartímabilið á áttunda áratug síðustu aldar. 2008 fór veiðin upp í 10.500 laxa og er það besti veiði í Spey á öldinni. Á þessum tíma var búið að banna netaveiði á ósasvæðum.
Lúsin myndaði ónæmi og löxum fækkaði
Þriðja tímabilið sem stendur enn (2012 – 2026) er svo tímabilið þar sem skörp niðursveifla hefur orðið í fjölda laxa í Spey og raunar í flest öllum ám Skotlands. Á þessum tíma dró mjög úr virkni SLICE og lúsin myndaði ónæmi gegn lyfinu. “Þarna sjáum við klára niðursveiflu í báðum stofnum. Sjóbirtingurinn sem heldur sig á grunnsævi varð fyrir hvað mestri breytingu og veiðin féll í sögulegt lágmark, undir þúsund fiska,” skrifa þeir Sam og Ronnie.
Fyrst varð vart við það árið 2008 að virkni SLICE væri að minnka. 2015 var svo komið að lyfið var hætt að virka segir í skýrslunni. “Lúsin gaus upp á nýjan leik og fyrirtækin réðu ekki við ástandið með óhjákvæmilegum afleiðingum fyrir laxaseiði á ferðalagi sínu norður,” segir í skýrslunni. Þessi þróun er vonbrigði að mati skýrsluhöfunda en að sama skapi afar mikilvæg til að skilja hvað er að gerast með laxaseiði í sjó á leið á fæðuslóð. “Þetta styður þá kenningu að meginorsök dánartíðni laxaseiða í sjó megi rekja til laxalúsa sem berast frá sjókvíum og þar af leiðandi skýri þann samdrátt sem hefur orðið í laxastofni Spey og annarra áa á Austurströnd Skotlands,” segir í skýrslunni.
Á meðan að eldisfyrirtækin gátu haldið laxalúsinni niðri með því að gefa laxinum skordýraeitur fjölgaði villtum löxum sem sneru á ný á heimaslóðir í ferskvatni. Um leið og lúsin fjölgaði sér á ný, orðin ónæm fyrir eitrinu jókst dánartíðni seiða og sama þróun og sjá hefur mátt til lengri tíma, hélt áfram.
Lax í Skotlandi er nú rauðlistaður og talinn í útrýmingarhættu. Sú staðreynd vekur upp spurninguna hjá þeim Sam og Ronnie, af hverju þurfa þeir sem vilja vernda villta laxinn að geta lagt fram sönnunargögn um þá miklu hættu sem steðjar af óviðráðanlegum lúsafaröldrum í sjókvíum. Af hverju er sönnunarbyrðinni ekki snúið við? Að eldisfyrirtækin þurfi að sanna að þetta hafi ekki áhrif?
Hér er búið að setja saman ýmsar upplýsingar. Bláa línan er heildarfjöldi stangaveiddra laxa í Skotlandi. Græna lína er netaveiddur lax við Skotland á sama tímabili. Svarta línan er eldislax í N-Atlantshafi. Loks er það rauða lína sem sýnir hvernig SLICE lyfið virkar og hvernig virknin snarminnkaði svo eftir nokkur ár. Línurit/Ronnie Fraser
Örvæntingafull barátta við laxalús
Það vantar ekki að eldisfyrirtækin eru að berjast við lúsina með kjafti og klóm því að hún hefur mjög skaðleg áhrif á framleiðsluna þegar fjöldi lúsa fer úr hófi fram eins og virðist gerast reglulega.
Spey skýrslan horfir til þess sem þar er kallað sífellt örvæntingafyllri aðgerðir til að stemma stigu við lúsafaröldrum sem reglulega koma upp. Eitt af því er að klóra hreinlega laxinn. Þar vitna þeir til þess að það getur vart verið hugguleg reynsla fyrir laxinn sem hefur ekki augnlok, eins og þeir benda á.
Önnur aðferð sem notast er við að setja í sjókvíarnar fiska sem éta lúsina af laxinum. Þar er hrognkelsi og nokkrar tegundir af Wassre eða „hreinsunarfiski“ sem notast hefur verið við. Talið er að árlega séu um 50 milljón slíkir fiskar nýttir í sjókvíum við Skotland og Noreg. Sú leið er ekki galla- eða áhættulaus og ýmis vandkvæði komið upp við þessa aðferð.
Að baða laxa upp úr heitu vatni hefur líka verið reynt. Það getur vart talist góð meðhöndlun fyrir fiska með kalt blóð sem aðlagaðir eru fyrir kaldan sjó og hitastig á bilinu 1 til 15 gráður.
Enn einn angi þessarar umræðu er að það ónæmi sem lúsin hefur þróað með sér gegn SLICE veldur því að þær geta orðið enn hættulegri fyrir villta laxinn þegar þær finna slíka hýsla.
Spey skýrslan vitnar að lokum til þess að í stefnu skoskra yfirvalda þegar kemur að sjálfbæru fiskeldi sé tekið skýrt fram að það sé skylda ráðherra að horfa alltaf til hinna fimm grundvallarreglna þegar kemur að umhverfinu, bæði nú og til framtíðar.
Þær meginreglur segja að stjórnvöld skuli við alla stefnumótun taka tillit til umhverfissjónarmiða og tryggja að hún sé í heiðri höfð og farið skuli að með gát þegar þættir sem varða umhverfið til framtíðar eru til umfjöllunar. Þá er einnig kveðið fast að orði með að skaði sem umhverfið verði fyrir skuli rannsakaður og að sá er valdi skaðanum skuli borga.
Hér er áin Dee í Skotlandi tekin út úr. Bláa línan sýnir heildar veiði árlega á tímabilinu. Hún rís hratt þegar SLICE lyfið er tekið í notkun og menn ná tökum á lúsinni. Ljósgræni flöturinn sýnir hvernig lyfið virkaði. Þegar lúsin þróaði með sér ónæmi þá dró hratt úr veiðinni á nýjan leik. Línurit/Ronnie Fraser
Getum ekki haft bæði villtan lax og sjókvíaeldi
Svo eru það lokaorð Spey skýrslunnar. „Spurningin núna er hvort stjórnvöld í Skotlandi samþykki þau sönnunargögn sem liggja fyrir og heimfæri þessar umhverfisgrundvallarreglur á sjókvíaeldi eða hvort stjórnvöld muni áfram láta undan talsmönnum iðnaðarins og þeirra málpípum. Valið er skýrt. Við getum tryggt að það verði áfram villtur lax í Spey og öðrum frábærum ám í Skotlandi. Eða við getum stundað laxeldi í opnum sjókvíum. Við getum ekki haft hvoru tveggja.“
Þegar horft er sjókvíaeldis við Ísland er eftir því sem Sporðaköst komast næst ekki horft til þátta á borð við dreifingu lúsar langt út frá sjókvíunum sjálfum. Stóri þátturinn er áhættumat erfðamengunar. Eins og nefnt er fyrr í fréttinni var nú í fyrsta skipti kannað hvort erfðaefni laxalúsar fyndist úti fyrir Vestfjörðum. Er þetta þáttur sem leggja þarf meiri áherslu á, að kanna hvort lúsalirfur frá sjókvíum berist um langan veg og auki þannig dánartíðni laxaseiða og fækki þeim löxum sem snúa aftur í laxveiðiárnar?
Í því samhengi er forvitnilegt að skoða hvað sérfræðinganefnd sagði í skýrslu til sjávarútvegsráðherra sem lögð var fram á Alþingi árið 2020. Kristján Þór Júlíusson, þáverandi sjávarútvegsráðherra skipaði nefnd þriggja óvilhallra vísindamanna á sviði fiskifræði, stofnerfðafræði og/eða vistfræði til að rýna aðferðafræði sem Hafrannsóknastofnun notar við mat á burðarþoli og við gerð áhættumats. Nefndin skilaði áliti sínu og þar má meðal annars finna þessi ummæli. “Miðað við þessar bakgrunnsupplýsingar frá Noregi telur nefndin það athyglisvert að sem stendur skuli mat á hugsanlegum áhrifum fiskeldis á umhverfið á Ísland einskorðast við strokufisk og lífræna mengun. Öðrum þáttum umhverfislegrar sjálfbærni sem leiddir hafa verið í ljós með skýrum hætti, ekki aðeins í Noregi, heldur einnig í öðrum fiskeldislöndum svo sem Skotlandi og Chile, svo einhver lönd séu nefnd, virðist lítill gaumur gefinn. Nefndin leggur því til að við frekari áhættumat á Íslandi verði tekið tillit til fleiri áhættuþátta en þeirra sem lagðir voru fyrir nefndina og eru metnir hér af nefndinni.”
Nefndin hafði áður í áliti sínu vakið athygli meðal annars á laxalús sem var á þeim tíma orðið verulegt vandamál í Noregi og víðar. Nefndina skipuðu Gunnar Stefánsson prófessor í tölfræði við Háskóla Íslands skipaður formaður hennar. Auk Gunnars voru skipaðir í nefndina þeir Kevin Glover, forsvarsmaður stofnerfðafræðihóps norsku hafrannsóknastofnunarinnar og dósent við Háskólann í Bergen og Bruce McAdam sem kennir vistfræðilega líkanagerð við fiskeldisstofnun Háskólans í Stirling í Skotlandi.
Í svörum Hafrannsóknastofnunar sem voru í viðauka skýrslunnar, tók stofnunin undir þessi sjónarmið.
NASCO: Koma í veg fyrir strok og lúsasmit
WildFish samtökin í Bretlandi sem unnu líkanið fyrir Skotland hafa unnið sambærilegt líkan á dreifingu laxalúsar út frá sjókvíum sem staðsettar eru við Orkneyjar (26 fyrirtæki) og Hjaltlandseyjar (42 fyrirtæki). Niðurstöðurnar er áþekkar þeim sem birtar hafa verið fyrir Skotland. Kannski væri ráð að Hafrannsóknastofnun fengi vísindamenn WildFish samtakanna til að gera sambærilegt líkan fyrir íslenskt sjókvíaeldi og dreifingu út frá þeim kvíum sem eru hér við land.
Til að loka þessu þá skulum við aftur líta á frumniðurstöður sem vísindamenn skiluðu NASCO fyrr á árinu og þessi grein hefst á. NASCO leggur til að reglur ráðsins verði teknar upp og miðað að bestu mögulegu starfsháttum. Þar segir að 100 prósent eldisfyrirtækja, eða öll, skuli hafa stjórn á lús í eldiskvíum þannig að ekki verði aukning á lús, umfram þau viðmið sem sett hafa verið. Jafnframt að tryggja að ekki verði aukin dánartíðni á seiðum sem rekja megi til lúsasmits frá sjókvíum.
Svo er það hin spurningin sem seinni hópur vísindamanna vann að fyrir NASCO og það er hvort erfðamengun hefði átt sér stað út frá sjókvíaeldi. Þar hafa aðeins verið birtar frumniðurstöður. Þær staðfesta að erfðasmit hefur átt sér stað frá stórum framleiðendum eldislax. Nefnd eru löndin Noregur, Skotland, Kanada og Ísland. Hópurinn sem stóð að þessum athugunum kannaði stöðuna í 481 laxveiðiá. Í ljós kom að í 57% eða 275 ám mátti finna erfðasmit og var það að finna allt umhverfis Norður Atlantshafið.
NASCO hvetur til varúðarsjónarmiða og að teknar verði upp þær reglur sem ráðið talar fyrir um bestu starfshætti. Þar er markmiðið að 100 prósent af öllum fiski í starfsemi eldisfyrirtækja verði haldið innan “veggja” fyrirtækisins. Enginn lax sleppi.
Markmiðið er metnaðarfullt, hvort sem um er að ræða lúsasmit frá kvíum eða að komið verði í veg fyrir strok á laxi. Spurningin sem snýr að íslenskum ráðamönnum og vísindamönnum er hvaða áhrif þessar upplýsingar og tilmæli NASCO munu hafa hér á landi?
Seinustu hundraðkallar sumarsins
| Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
|---|---|---|---|
| 108 cm | Stóra Laxá | Jón Kristinsson | 27. september 27.9. |
| 100 cm | Laxá í Dölum | Reynir Sigmundsson | 26. september 26.9. |
| 102 cm | Fossá | Theodór Ingibergsson | 18. september 18.9. |
| 102 cm | Selá í Vopnafirði | Huginn Freyr Þorsteinsson | 4. september 4.9. |
| 103 cm | Laxá í Aðaldal | Auðunn Sigurðsson | 3. september 3.9. |
| 107 cm | Laxá í Aðaldal | Nils Folmer Jorgensen | 29. ágúst 29.8. |
| 102 cm | Hofsá | Bergþór Jónsson | 25. ágúst 25.8. |
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗






