„Þetta bjargaði lífi mínu“

Björn bendir á að höfuðverkur hafi ekki verið meðal einkennanna sem hann fann fyrir, þrátt fyrir stærð æxlisins. Þess vegna hafi honum ekki dottið í hug að vandinn gæti verið í heilanum. Samsett mynd

Reynsla Björns Árna Ágústssonar af heilbrigðiskerfinu er að hans mati dæmi um mikilvægi þess að hlusta á sjúklinga og bregðast tímanlega við einkennum sem geta reynst alvarleg.

Eftir að hafa leitað til heilsugæslunnar vegna fjölda einkenna og mætt þar framtaksleysi og óviðunandi svörum leitaði hann til heilsutæknifyrirtækisins Intuens. Þar kom í ljós að stærðarinnar heilaæxli hefði verið valdurinn að vanlíðan hans.

„Þetta bjargaði lífi mínu. Ég væri rúmliggjandi núna ef ég hefði ekki leitað til Intuens,“ segir Björn við mbl.is. Hann vill með sögu sinni vekja athygli á því að heilbrigðiskerfið þurfi að bregðast fyrr við, tryggja eftirfylgni og nýta betur þá tækni og rannsóknarmöguleika sem til staðar eru.

Ekkert varð úr símtali frá lækninum

Einkennin sem Björn lýsti fyrir lækninum á heilsugæslunni voru orkuleysi, mikill skjálfti og versnandi hreyfigeta, en eins og hann orðar það voru hreyfingar hans orðnar klaufalegar. Hann varð sjálfur að ýta á eftir rannsóknum og koma með hugmyndir að því hvað þyrfti að skoða og lagði meðal annars til að byrjað yrði á blóðprufum og að kannað yrði hvort eitthvað væri að í þvagfærum eða blöðruhálskirtli.

Að loknum blóðprufum fékk hann símtal frá lækninum sem sagði að allt liti þar eðlilega út. Svo heppilega vildi þó til að vinur Björns er læknir. Hann leit yfir niðurstöðurnar og benti Birni á að sökk, sem segir til um hversu hratt rauð blóðkorn sökkva til botns í blóðsýni á einni klukkustund, hefði ekki verið mælt. Björn þurfti því sjálfur að óska eftir annarri blóðprufu. Rannsóknir á þvagi og blöðruhálskirtli reyndust eðlilegar.

Þrátt fyrir þetta héldu einkennin áfram og honum fannst hann standa uppi með þær upplýsingar að allt væri í lagi, þótt honum sjálfum liði greinilega illa.

Björn reyndi ítrekað að ná sambandi við lækninn til að fá frekari skoðun og rannsóknir. Hann lýsir því sem þekkt er í heilbrigðiskerfinu, að erfitt hafi verið að ná í lækni og að hann hafi þurft að hringja snemma á morgnana og bíða lengi í símaröð. Hann óskaði eftir því að læknirinn hringdi í sig þegar færi gæfist en ekkert varð úr því.

„Ég var svo heppinn“

Eftir um mánuð og mikla hvatningu frá eiginkonu sinni leitaði hann til Intuens, þar sem hann var um leið settur í segulómun. Þar kom í ljós að hann var með mjög stórt heilaæxli, um sjö sentímetra að stærð, sem þrýsti á heilann og olli einkennunum sem hann hafði verið að upplifa.

Æxlið reyndist góðkynja og Björn komst mjög fljótlega í aðgerð. Æxlið var tekið í heilu lagi og aðgerðin gekk vel fyrir sig.

„Þetta er svakalega stór topplúga sem ég er með á höfðinu,“ segir hann. „Daginn eftir var ég bara góður. Orkan komin, skjálftinn farinn. Ég var svo heppinn að ég fór á þriðja degi heim.“

Eftir á að hyggja segir hann áhugavert að hann skuli aldrei hafa fengið höfuðverk, þrátt fyrir stærð æxlisins, en einmitt þess vegna hafi honum ekki dottið í hug í byrjun ferlisins að vandinn gæti verið í heilanum.

Um sjö sentímetra stórt heilaæxli hafði þrýst á heila Björns og valdið einkennunum sem hann hafði verið að upplifa. Ljósmynd/Aðsend

Hér til vinstri má sjá hvernig æxlið hafði þrýst heila Björns saman. Til hægri er heilinn eftir aðgerð. Ljósmynd/Aðsend

Ástandið ekki læknum að kenna

Björn hrósar starfsfólki Landspítalans og læknunum sem önnuðust aðgerðina fyrir framúrskarandi vinnu og góða eftirfylgni og leggur áherslu á að hann sé ekki að kenna læknum um ástand heilbrigðiskerfisins heldur beinist gagnrýni hans fyrst og fremst að kerfinu sjálfu, fjármögnun þess og áherslum stjórnvalda.

Konan hans var mjög ósátt við hvernig tekið var á einkennum Björns á heilsugæslunni. Henni fannst óásættanlegt að rannsókninni hefði ekki verið fylgt eftir og að þau hefðu þurft að leita sjálf til einkafyrirtækis til að fá einhver svör.

Því tók hún sig til og skrifaði bréf til yfirlæknis heilsugæslunnar þar sem hún lýsti óánægju sinni og benti á mikilvægi þess að taka sambærileg einkenni alvarlega hjá öðrum sjúklingum. Þrátt fyrir að hafa gengið eftir því hvort bréfið hefði borist fékk hún aldrei svar eða afsökunarbeiðni.

Að sögn Björns hefði þeim nægt að fá einföld viðbrögð frá heilsugæslunni, til dæmis viðurkenningu á því að betur hefði mátt fara og loforð um að gera betur í framtíðinni.

Þá segist hann hafa yfirgefið sína heilsugæslu eftir þetta og ætli ekki að leita þangað aftur.

„Þetta er svakalega stór topplúga sem ég er með á höfðinu,“ segir Björn við mbl.is. Á myndinni má sjá umrædda topplúgu. Ljósmynd/Aðsend

Heilbrigði almennings verði sett í forgang

Björn nefnir einnig að á sama tíma og hann var að leita til Intuens hafi hann heyrt lækna gagnrýna fyrirtækið í útvarpinu. Þeir hafi talað um að fólk væri að leita þangað að óþörfu vegna smávægilegra kvilla.

Honum hafi brugðið við orðalag læknanna, enda sjálfur nýbúinn að fá greiningu hjá fyrirtækinu sem breytti lífi hans. Þá segir hann mikilvægt að fólk hafi möguleika á að leita annað þegar það fær ekki viðunandi svör frá opinbera kerfinu.

Hann gagnrýnir sérstaklega að hafa sjálfur orðið að stýra því hvaða rannsóknir væru gerðar og telur að læknirinn hefði átt að hafa frumkvæði að frekari rannsóknum eins og segulómun.

Hann notar bílaskoðun sem samlíkingu: „Fólk lætur skoða bílinn reglulega til að tryggja að allt sé í lagi. Er ekki eðlilegt að sambærileg áhersla sé lögð á heilsu fólks?“

Að lokum lýsir Björn vonbrigðum með að einstaklingar sem hafi lagt sitt af mörkum til að byggja upp samfélagið og heilbrigðiskerfið geti síðan lent í því að fá ekki viðeigandi og jafnvel lífsnauðsynlega þjónustu þegar þeir þurfa á henni að halda.

Samfélagið hafi sýnt í gegnum árin að það sé tilbúið að leggja sitt af mörkum til að styðja við heilbrigðiskerfið. Því kalli hann eftir því að stjórnvöld sýni sama vilja og setji heilbrigði almennings í forgang.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅