Náði 503 kílómetra hraða á rafbíl
Yangwang, lúxusbílamerki kínverska bílaframleiðandans BYD, hefur sett nýtt heimsmet í hraðakstri bíla í raðframleiðslu.
Rafknúinn ofursportbíll af gerðinni Yangwang U9 Xtreme náði 503,17 kílómetra hraða á klukkustund á lokuðum kafla hraðbrautar í Abú Dabí í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.
Bíllinn bætti þar með eigið hraðamet og fór í fyrsta sinn yfir 500 kílómetra hraða á klukkustund, að því er segir í frétt á vef Forbes.
Aksturinn fór fram 1. nóvember á Sheikh Khalifa Bin Zayed International Road, sem einnig er þekkt sem E11, í Al Dhafra-héraði í Abú Dabí. Bæði Heimsmetabók Guinness og Alþjóðaakstursíþróttasambandið, FIA, viðurkenndu árangurinn.
Tvö heimsmet staðfest
Fulltrúar Heimsmetabókar Guinness staðfestu tvö heimsmet: mesta hraða sem bíll í raðframleiðslu hefur náð við akstur í eina átt og samsvarandi met fyrir rafbíl í raðframleiðslu.
Þýski kappakstursökumaðurinn Marc Basseng sat undir stýri. Hann ók einnig U9 Xtreme þegar bíllinn náði fyrra meti sínu, 496,22 kílómetra hraða á klukkustund, í Þýskalandi árið 2025.
内容来自 mbl.is - Tækni og Vísindi,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/8/1690899.jpg)