Náði 503 kílómetra hraða á rafbíl

Yangwang U9 Xtreme náði 503,17 kílómetra hraða á klukkustund.

Yangwang U9 Xtreme náði 503,17 kílómetra hraða á klukkustund. Ljósmynd/Yangwang

Yangwang, lúxusbílamerki kínverska bílaframleiðandans BYD, hefur sett nýtt heimsmet í hraðakstri bíla í raðframleiðslu.

Rafknúinn ofursportbíll af gerðinni Yangwang U9 Xtreme náði 503,17 kílómetra hraða á klukkustund á lokuðum kafla hraðbrautar í Abú Dabí í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.

Bíllinn bætti þar með eigið hraðamet og fór í fyrsta sinn yfir 500 kílómetra hraða á klukkustund, að því er segir í frétt á vef Forbes. 

Aksturinn fór fram 1. nóvember á Sheikh Khalifa Bin Zayed International Road, sem einnig er þekkt sem E11, í Al Dhafra-héraði í Abú Dabí. Bæði Heimsmetabók Guinness og Alþjóðaakstursíþróttasambandið, FIA, viðurkenndu árangurinn.

Tvö heimsmet staðfest

Fulltrúar Heimsmetabókar Guinness staðfestu tvö heimsmet: mesta hraða sem bíll í raðframleiðslu hefur náð við akstur í eina átt og samsvarandi met fyrir rafbíl í raðframleiðslu.

Þýski kappakstursökumaðurinn Marc Basseng sat undir stýri. Hann ók einnig U9 Xtreme þegar bíllinn náði fyrra meti sínu, 496,22 kílómetra hraða á klukkustund, í Þýskalandi árið 2025.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅