Þrír koma til greina hjá United
Þrír stjórar koma til greina sem mögulegir arftakar Michael Carrick hjá enska knattspyrnufélaginu Manchester United.
David Ornstein hjá The Athletic segir frá en allar líkur eru á því að Michael Carrick verði rekinn sem stjóri United.
Þeir sem koma til greina í stað Carricks eru Mauricio Pochettino, landsliðsþjálfari Bandaríkjanna, Eddie Howe, fyrrverandi stjóri Newcastle og Bournemouth, og Julian Nagelsmann, fyrrverandi landsliðsþjálfari Þýskalands.
United hefur byrjað tímabilið afskaplega illa og situr í 18. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með átta stig eftir tíu umferðir.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

