Myndir: Breiðholtsskóli og Klébergsskóli áfram í úrslit Skrekks

Breiðholtsskóli og Klébergsskóli tryggðu sér sæti í úrslitum Skrekks á fyrsta undanúrslitakvöldinu í Borgarleikhúsinu í kvöld.

Undanúrslitakvöldin eru þrjú talsins og halda áfram á morgun og miðvikudag. 

Að þessu sinni taka 793 ungmenni frá 26 skólum þátt en atriði frá átta skólum komast í úrslit sem fara fram 16. nóvember.

Ungmennin allt í öllu

Ungmennin nýta allar sviðslistir í atriðin: tónlist, dans, leiklist og gjörninga sem þau semja sjálf og eru frumsamin lög í sumum atriðum. 

Þá sjá þau líka um tæknihliðina, búninga og förðun. Fullorðnir hafa það hlutverk að styðja við uppsetningu atriðanna.

Skrekkur er samstarfsverkefni skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur, grunnskóla og félagsmiðstöðva í Reykjavík, RÚV og Borgarleikhússins. 

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅