Leynileg kókaínneysla miðaldra karla: Læknir segir frá merkjunum sem makar ættu að þekkja
„Jólahlaðborðatíðin nálgast óðfluga og eflaust eiga einhverjar eiginkonur eftir að liggja andvaka og velta því fyrir sér við hverja eiginmenn þeirra séu að daðra á jólaskemmtun vinnunnar. En þær ættu kannski frekar að hafa áhyggjur af því hversu oft þeir skreppa á klósettið.“
Svona hefst pistill sem breski geðlæknirinn Max Pemberton skrifar og birtist á vef Daily Mail.
Kókaín hefur í fyrsta sinn farið fram úr heróíni og morfíni þegar kemur að fjölda fíkniefnatengdra dauðsfalla í Englandi og Wales. Það sem vekur sérstaka athygli er að stór hluti þeirra sem látast er ekki ungt fólk heldur miðaldra karlar, margir hverjir í góðum störfum og með fjölskyldur sem hafa jafnvel ekki hugmynd um fíkniefnaneyslu þeirra.
Pemberton fjallar um þessa þróun í umræddum pistli. Hann segir að kókaínneysla meðal miðaldra karla sé vaxandi áhyggjuefni og bendir á ýmis viðvörunarmerki sem makar og aðstandendur ættu að þekkja.
Samkvæmt nýjum tölum bresku hagstofunnar, sem Pemberton vísar til, kom kókaín við sögu í 1.233 dauðsföllum sem skráð voru á síðasta ári, samanborið við 1.210 dauðsföll þar sem heróín eða morfín komu við sögu. Fjöldi kókaíntengdra dauðsfalla hefur um það bil fjórfaldast á síðustu tíu árum.
Fjölskyldufaðirinn sem faldi neysluna
Pemberton segir að meira en þriðjungur þeirra sem létust í Englandi og höfðu neytt kókaíns hafi verið á fimmtugsaldri og annar þriðjungur á aldrinum 50 til 69 ára. Aðeins 136 voru á þrítugsaldri.
Hann segir að dæmigerður einstaklingur í þessum hópi sé miðaldra karlmaður sem eigi farsælan starfsferil og fjölskyldu sem viti jafnvel ekkert um neysluna.
Til að varpa ljósi á vandann segir hann frá skjólstæðingi sínum, sem hann kallar James. Sá var á miðjum fimmtugsaldri, gegndi ábyrgðarstöðu, átti fallegt heimili, eiginkonu og tvö börn.
James hafði verið vísað til Pembertons vegna þunglyndiseinkenna, pirrings og almenns áhugaleysis á daglegum hlutum. Þegar læknirinn spurði hann sérstaklega út í fíkniefnaneyslu kom hins vegar annað í ljós.
Maðurinn hafði um árabil notað kókaín stöku sinnum í veislum og við sérstök tilefni. Eftir stöðuhækkun í vinnunni jókst álagið og hann fór að nota efnið til að halda sér vakandi og einbeittum langt fram á kvöld.
Áður en langt um leið var hann farinn að neyta nokkurra skammta á dag og laumaðist reglulega inn á salerni á vinnustaðnum til að taka kókaín.
Hann hafði safnað skuldum upp á þúsundir punda án vitundar eiginkonunnar. Neyslan var einnig farin að valda alvarlegum líkamlegum skaða og hafði gat myndast í nefi hans.
Þrátt fyrir þetta hélt hann áfram að neyta kókaíns daglega. Hann sagðist ekki lengur taka efnið sér til ánægju heldur einfaldlega til að geta tekist á við daglegt líf.
Sérstaklega hættulegt með áfengi
Pemberton bendir á að kókaín hafi orðið ódýrara og sterkara á undanförnum árum. Samkvæmt bresku hjálparsamtökunum WithYou hefur verð á grammi lækkað um 40 prósent á sex árum á sama tíma og hreinleiki efnisins hefur aukist.
Hann segir miðaldra karla sérstaklega viðkvæma fyrir áhrifum kókaíns á hjarta- og æðakerfið.
Efnið þrengir æðar, hækkar blóðþrýsting og eykur hjartslátt. Það getur þannig stuðlað að hjartaáföllum og heilablóðföllum.
Hættan eykst enn frekar þegar kókaín er tekið samhliða áfengi. Við það myndast efnið kókaetýlen í líkamanum, sem hefur skaðleg áhrif á hjartað.
Pemberton bendir á að karlmaður á fimmtugsaldri geti verið í mun meiri hættu vegna slíkrar neyslu en hann var á þrítugsaldri.
Merkin sem makar ættu að þekkja
Í pistlinum nefnir Pemberton nokkur einkenni sem gætu bent til þess að einstaklingur sé að fela kókaínneyslu.
Meðal þeirra eru tíðar ferðir á salerni í veislum og samkvæmum, sérstaklega ef viðkomandi kemur til baka mun málglaðari, hressari og sjálfsöruggari en áður.
Viðvarandi nefrennsli, stíflað nef og tíðar blóðnasir geta einnig verið vísbendingar um neyslu.
Þá geta sumir drukkið mun meira áfengi en venjulega án þess að virðast sérstaklega ölvaðir, þar sem örvandi áhrif kókaíns geta dulið hluta af áhrifum áfengisins.
Dagana eftir neyslu getur komið fram mikill pirringur, þreyta og depurð sem auðvelt er að afskrifa sem timburmenn eða afleiðingar vinnuálags.
Pemberton segir einnig að óútskýrðar skuldir, tíðar peningaúttektir og aukin leynd í kringum síma og fjármál geti verið ástæða til að staldra við.
Hann leggur þó áherslu á að ekkert þessara einkenna sanni eitt og sér að viðkomandi noti fíkniefni. Það sé fremur samspil nokkurra einkenna og breytingar á hegðun sem geti gefið tilefni til samtals.
Mikilvægt að ræða málin
Pemberton ráðleggur fólki sem hefur áhyggjur af neyslu maka síns að velja rólega stund til að ræða málin, fremur en að bera upp ásakanir um miðja nótt eftir skemmtun.
Mikilvægt sé að lýsa þeim breytingum sem fólk hefur tekið eftir og útskýra hvers vegna þær valda áhyggjum.
Hann segir skömm oft verða til þess að fólk feli neyslu sína enn betur og því skipti máli að nálgast vandann án ásakana.
Kókaínfíkn sé hægt að meðhöndla og bendir hann til dæmis á að skjólstæðingur hans, James, hafi að lokum náð bata.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗