Hver þarf hlutabréf þegar til er beikon?

Það þarf enga einkasnekkju til að njóta milljónamæringaréttanna á matarvefnum. Þessi var mynduð við Amalfiströndina á Ítalíu. Viktor Ritsvall/Unsplash

Á matarvef mbl.is er að finna ógrynni uppskrifta. Þær eru kannski ekki orðnar milljón talsins en milljónirnar leynast þó í nöfnum sumra réttanna. Hér má finna milljón króna ídýfu, milljón dollara spagettírétt og milljónamæringasmáköku. Snoop Dogg gengur svo skrefinu lengra með beikoni fyrir milljarðamæringa.

Við tókum saman nokkra af „dýrustu“ réttum matarvefsins, ef marka má nöfnin. Sem betur fer þarf hvorki milljónir né milljarða til að prófa uppskriftirnar.

Milljón króna ídýfan

Milljón króna ídýfan eftir Thelmu Þorbergsdóttur er ríkuleg blanda af rjómaosti, sýrðum rjóma, rifnum osti, rauðlauk og stökku beikoni. Enska heitið Million Dollar Dip vísar til þess að ídýfan þyki bragðast eins og milljón dollara. Í fyrirsögn íslensku uppskriftarinnar eru dollararnir orðnir að krónum.

Ídýfuna má bera fram með snakki eða góðu kexi og velja hvort hún sé unnin slétt eða höfð með grófari bitum.

Beikon fyrir milljarðamæringa

Í kokkabók Snoop Dogg, From Crook to Cook, fær beikonið nafnið Billionaire’s Bacon, eða beikon fyrir milljarðamæringa. Nafngiftin er í anda glettinnar kynningar rapparans á réttinum sem sérstaklega íburðarmikilli útgáfu af venjulegu beikoni.

Í uppskriftinni á matarvefnum eru þykkar beikonsneiðar bakaðar með púðursykri og svörtum pipar. Chiliflögur eða cayennepipar gefa örlítinn hita fyrir þá sem það vilja. Útkoman er sæt og sölt viðbót á morgunverðarborðið eða snarl með drykkjum.

Milljón dollara spagettí

Heitið milljón dollara spagettí er gjarnan skýrt með ríkulegu bragðinu og mjúku ostalaginu sem einkennir réttinn. Milljónin vísar þannig til upplifunarinnar við matarborðið fremur en hráefniskostnaðarins.

Í útgáfu Völlu Gröndal eru nautahakk og grísahakk elduð í kryddaðri tómatsósu. Spagettíi, ostablöndu og hakksósu er síðan raðað í eldfast mót og rétturinn bakaður með rifnum osti yfir. Með má bera fram hvítlauksbrauð og ferskt salat.

Milljónamæringasmákakan

Milljónamæringasmákakan, sem nefnist millionaire’s shortbread á ensku, samanstendur af smjörmiklum kexbotni, karamellulagi og súkkulaði. Heitið er gjarnan skýrt með því hversu sæt og ríkuleg samsetningin er.

Þarna er því milljónamæringurinn í kökuheitinu en engin krafa gerð um efnahag þeirra sem setjast að kaffiborðinu. Karamella og súkkulaði duga langt.

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅