Rúmlega tíunda hver móðir með ríkisfang utan Schengen

Landspítalinn.

Í 288 af þeim af þeim 2.570 fæðingum sem skráðar voru á Landsspítala frá áramótum til 7. október var móðir með ríkisfang utan Schengen. Það jafngilti 11,2% prósentum fæðinga, samanborið við 10,8% allt árið 2025 og 6,3% árið 2021.

Þetta kemur fram í samantekt Landspítalans um ríkisfang foreldra. Hlutfall fæðinga þar sem móðir er með ríkisfang utan Schengen hefur hækkað á hverju ári frá 2021.

Árið 2021 voru 220 fæðingar skráðar hjá mæðrum með ríkisfang utan Schengen en 346 árið 2025. Það er fjölgun um 57 prósent. Á sama tímabili dróst heildarfjöldi fæðinga á spítalanum saman um tæp átta prósent, úr 3.469 í 3.202.

Af fæðingunum 2.570 sem skráðar voru til 7. október í ár voru 2.000 hjá mæðrum með íslenskt ríkisfang, eða 77,8 prósent. Í 282 tilvikum var móðir með ríkisfang annars Schengen-ríkis, sem jafngildir 11 prósentum.

Svipuð þróun sést í tölum um ríkisfang feðra. Í 242 fæðingum það sem af er árinu var faðir skráður með ríkisfang utan Schengen, eða í 9,4 prósentum tilvika. Hlutfallið var 8,8 prósent árið 2025 og 4,2 prósent árið 2021. Skráningum þar sem ríkisfang föður er óþekkt hefur þó fækkað frá 2021, sem þarf að hafa í huga við samanburðinn.

Rúmlega fimmta hver móðir með erlent ríkisfang

Rúmlega fimmta hver móðir á Landspítala var með erlent ríkisfang á fyrstu rúmu níu mánuðum ársins. Af 2.570 skráningum voru 570 hjá mæðrum með erlent ríkisfang, eða 22,2 prósent, en 2.000 hjá mæðrum með íslenskt ríkisfang, eða 77,8 prósent.

Um helmingur fæðinga erlendra ríkisborgara er  því hjá mæðrum með ríkisfang utan Schengen. 

Taka ber fram að flokkunin byggist á ríkisfangi foreldra og segir ekki ein og sér til um fæðingarland þeirra eða hversu lengi þau hafa búið á Íslandi.

Úkraínskir ríkisborgarar fjölmennastir utan Schengen

Um 21.400 manns íbúa á Íslandi voru með ríkisfang utan Schengen í upphafi árs eða 5,4% landsmanna. Í heild búa rúmlega 71 þúsund erlendir ríkisborgarar á Íslandi. Til samanburðar má sjá á meðfylgjandi töflu að tíu fjölmennustu hópar íbúa á Íslandi með ríkisfang ríkja utan Schengen 1. janúar 2026 eru eftirfarandi: 

RíkisfangFjöldi íbúa
Úkraína 4.636
Venesúela 1.931
Filippseyjar 1.716
Víetnam 1.188
Bandaríkin 1.113
Palestína 926
Bretland 925
Sýrland 696
Indland 561
Taíland 545

Heimild: Hagstofa Íslands. Flokkað eftir ríkisfangi utan Schengen. 

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅