Hanna Birna og Sigríður Margrét fóru á trúnó
Félag kvenna í atvinnulífinu, FKA, bauð til morgunverðarfundar í höfuðstöðvum Bláa Lónsins. Þar mættust Hanna Birna Kristjánsdóttir stofnandi Reykjavík Global Forum og Sigríður Margrét Oddsdóttir forstjóri Bláa Lónsins. Yfirskrift morgunfundarins var: Það sem liggur að baki árangrinum.
„Þar fengum við innsýn í reynslu Hönnu Birnu, stofnenda Reykjavík Global Forum og Sigríðar Margrétar, forstjóra Bláa Lónsins. Önnur er B-manneskja, hin er A+ manneskja. Ein velur kaffi en hin te þannig að það var ótrúlega gaman að hlusta á þær. Auðvitað er raunveruleiki þarna úti sem sameinar konur en við erum mjög ólíkar innbyrðis og það sýndi sig þarna. Það var mjög hressandi að hlusta á þær deila opinskátt með okkur því sem hefur mótað þær í starfi, áskorunum sem þær hafa tekist á við og lærdómnum sem þær hafa dregið af reynslunni,“ segir Andrea Róbertsdóttir framkvæmdastjóri FKA.
Reykjavík Global Forum hefur verið haldið níu sinnum á Íslandi en það var stofnað með það markmið að styrkja stöðu og samtal kvenna í valda- og áhrifastöðum.
„Við höfum verið í fararbroddi í jafnréttismálum og Reykjavík orðið mikilvægur vettvangur fyrir alþjóðlega umræðu um forystu, lýðræði og jafnrétti. Hanna Birna Kristjánsdóttir er einn af stofnendum Reykjavík Global Forum og stjórnarformaður þess sem hefur gegnt lykilhlutverki í að tengja saman kvenleiðtoga víðsvegar að úr heiminum þannig að eftir er tekið,“ segir Andrea og bætir við:
„Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa Lónsins, er ein af reyndustu leiðtogum íslensks atvinnulífs. Hún hefur yfir 20 ára reynslu af stjórnunarstörfum og gegndi starfi framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins áður en hún fór í Bláa Lónið og báðar deildu þær með okkur reynslu sinni, áskorunum og lærdómi úr krefjandi leiðtogastörfum. Ólíkar en jafn góðar.“
Fundinum var stjórnað af Öddu Soffíu Ingvarsdóttur samskiptastjóra stjórnar FKA Framtíðar.
„Á bak við árangur, ábyrgð og mikilvægar ákvarðanir liggur oft vinna sem fæst sjá og Adda fékk þær til að kafa lengst í bakpokann til að deila með okkur hvernig þær undirbúa sig fyrir verkefni eða á morgnanna, hvernig þær taka erfiðar ákvarðanir, fást við áskoranir og augnablik og óvissu. Án þess að uppljóstra hvað nákvæmlega kom fram, þetta var jú trúnó, þá kom fram í umræðum að það er afar mikilvægt að ræða opinskátt að sumt er bara viðbjóðslega erfitt, að það er margt undir húddinu og ekki sýnilegt og að það er þörf á seiglu í stórum stíl og því að halda áfram þegar við fáum kúlu á hausinn í nýjum aðstæðum eða erum að breyta hlutum og ryðja brautir,“ segir Andrea og bætir við.
„Lykillinn er gjarnan að eiga trúnaðarhóp þar sem við getum vaxið, speglað okkur í og lært af. Að eiga hóp sem eru samherjar okkar sem segja okkur satt, ekki alltaf kósí stöff, heldur allt litrófið. Svo ég tala fyrir mig sjálfa þá er vonlaust að vera með full herbergi af já fólki sem mjálmar alltaf bara í einum kór,“ segir Andrea.
Andrea segir að þær Hanna Birna og Sigríður Margrét hafi farið yfir víðan völl. Þær hafi rætt mistök og hvað það skipti miklu máli að rífa sig í gang ef eitthvað bjátar á.
„Mildi var síðan þema í umræðum hjá hópnum, að sýna sér mildi og svo taka sig ekki of alvarlega, vinna með alls konar fólki, pæla ekki of mikið í hvað öðrum finnst og svo bara halda áfram þegar á móti blæs og eitthvað gengur ekki upp. Rífa sig í gang eftir mistök, leyfa sér að skipta um skoðun og viðurkenna mistök. Mistök gera okkur mannleg eins og við vitum og þrátt fyrir að við lærum ekki á mistökum annarra þá var gefandi, einstakt að fá innsýn Hönnu Birnu og Sigríðar Margrétar og fá að verja tíma með svona flottum fyrirmyndum. Þetta var morgun sem gaf okkur öllum orku og hvatningu, síðan eru þær svo skemmtilegar, hoknar af reynslu og sitja svo vel í sér. Sjálfstraust er náttúrulega svo geggjað stöff og sjarmerandi. Þetta var einstakt tækifæri til að fá aðgang að alþjóðlegri þekkingu um leiðtogahæfni og stjórnarhætti hjá einstöku konum.“
Saga Úlfarsdóttir ráðgjafi og stofnandi Sasú og Andrea Anna Ingimarsdóttir stofnandi og eigandi Churros Wagon. Ljósmynd/Aðsend
Hanna Birna Kristjánsdóttir hjá Reykjavík Global Forum, Ingibjörg Salóme Sigurðarsdóttir formaður FKA og eigandi Gæludýr.is og Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa Lónsins. Ljósmynd/Aðsend
Sigríður Margrét Oddsdóttir forstjóri Bláa Lónsins og Hólmfríður Einarsdóttir framkvæmdastjóri Blue Lagoon Skin Science. Ljósmynd/Aðsend
Anna Kristín Kristjánsdóttir eigandi Hvíta hússins, Eva Magnúsdóttir hjá Podium og Sigríður Margrét Oddsdóttir forstjóri Bláa Lónsins og Þórunn Hilda Jónasdóttir, Tótla, hjá Magio viðburðasmiðju. Ljósmynd/Aðsend
Berglind Ósk Svavarsdóttir eigandi og framkvæmdastjóri Ficus Reykjavík og Unnur Guðríður Indriðadóttir markaðsstjóri Lemon. Ljósmynd/Aðsend
Andrea Róbertsdóttir framkvæmdastjóri FKA, Hanna Birna Kristjánsdóttir og Sylvía Hall framkvæmdastjóri Reykjavík Global Forum. Ljósmynd/Aðsend
Sigríður Arngrímsdóttir eigandi Arkotek, Unnur Guðríður Indriðadóttir markaðsstjóri Lemon, Guðlaug Hrönn Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri GET Ráðgjöf og Synia, Ásdís Ósk Valsdóttir eigandi Húsaskjól og Andrea Anna Ingimarsdóttir stofnandi og eigandi Churros Wagon Ljósmynd/Aðsend
Auður Ösp Jónsdóttir Infodata, Ásta Samúelsdóttir hjá Fagsmíði, Elfur Logadóttir framkvæmdastjóri ERA og Andrea Anna Ingimarsdóttir Churros Wagon. Ljósmynd/Aðsend
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗














