Allar líkur á að Carrick verði rekinn
Michael Carrick, knattspyrnustjóri Manchester United, er í verulegri hættu á að missa starf sitt hjá félaginu en forráðamenn þess kanna nú möguleikann á því að skipta um stjóra.
TalkSPORT greindi fyrst frá og David Ornstein, blaðamaður The Athletic, tók undir fréttirnar rétt í þessu.
Engin endanleg ákvörðun hefur verið tekin en búist er við að niðurstaða liggi fyrir á næstunni.
Mauricio Pochettino, landsliðsþjálfari Bandaríkjanna, er orðaður við starfið en samningur hans við bandaríska knattspyrnusambandið inniheldur riftunarákvæði.
Eddie Howe, knattspyrnustjóri Newcastle United, er einnig nefndur sem mögulegur arftaki Carrick.
United hefur byrjað tímabilið afskaplega illa og situr í 18. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með átta stig eftir tíu umferðir.
🚨 Manchester United intend to relieve Michael Carrick of duties. #MUFC say no final decision & nothing set in stone but work undertaken on replacements + multiple sources anticipate change before Liverpool. W/ @lauriewhitwell @AdamCrafton_ @TheAthleticFC https://t.co/E1W3QbGYx1
— David Ornstein (@David_Ornstein) November 9, 2026
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗