Bomba frá David Ornstein - Carrick verður rekinn á allra næstu dögum
Manchester United stefnir á að segja Michael Carrick upp störfum sem knattspyrnustjóra félagsins á næstu dögum.
Þetta fullyrðir David Ornstein, einn virtasti félagaskiptablaðamaður Englands, í frétt hjá The Athletic.
Samkvæmt Ornstein hafa forráðamenn United þegar hafið vinnu við að finna arftaka Carrick og búast fjölmargir heimildarmenn við að breyting verði gerð fyrir næsta leik liðsins gegn Liverpool.
Manchester United hefur þó tekið fram að engin endanleg ákvörðun hafi verið tekin og því sé brottrekstur Carrick ekki staðfestur.
United hefur átt afar erfitt uppdráttar á tímabilinu og situr nú í fallsæti ensku úrvalsdeildarinnar.
Liðið gerði 4-4 jafntefli gegn Aston Villa um helgina eftir dramatíska endurkomu en úrslitin virðast ekki hafa dugað til að sannfæra forráðamenn félagsins.
Carrick hefur verið undir mikilli pressu undanfarnar vikur og nú bendir flest til þess að dagar hans á Old Trafford séu taldir.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗