Rekinn í Skotlandi
Skoska knattspyrnufélagið Aberdeen hefur ákveðið að reka Stephen Robinson sem stjóra karlaliðs félagsins.
Robinson er 51 árs gamall en hann hætti með St. Mirren til að taka við Aberdeen í mars á þessu ári.
Byrjun liðsins hefur aftur á móti verið skelfileg í skosku deildinni en Aberdeen situr í ellefta og næstneðsta sæti með ellefu stig eftir tólf leiki. Liðið tapaði þá 4:0 fyrir Hibernian á heimavelli á laugardaginn.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗