„Við erum öll sameinuð í áfallinu“

Tveggja daga þjóðarsorg ríkir nú í Póllandi.

Tveggja daga þjóðarsorg ríkir nú í Póllandi. AFP

„Auðvitað erum við öll í áfalli. Öll sem eitt. Það er enginn munur á Pólverjum í Póllandi, Pólverjum á Íslandi eða Pólverjum hvar sem er annars staðar. Við stöndum öll saman í sorginni.“

Þetta segir Aleksander Kropiwnicki, yfirmaður pólska sendiráðsins á Íslandi, um voðaverkin sem urðu í borginni Kraká á laugardag þar sem árásarmaður keyrði inn á fjölfarið torg og hóf þar skothríð. Sex létust og 15 særðust.

Fyrir árásina hafði maðurinn, hinn 24 ára Michal Oksinski, myrt foreldra sína og systur.

Voðaverkin eru rannsökuð sem hryðjuverk og var tveggja daga þjóðarsorg lýst yfir í Póllandi í gær.

Aldrei áður í sögu Póllands

„Þjóðarsorg ríkti í gær og ríkir í dag, og þessi sorg er einlæg og sprottin af sjálfu sér. Við erum öll sameinuð í áfallinu,“ segir sendiherrann.

„Ég segi þetta aftur vegna þess að nokkuð þessu líkt hefur aldrei gerst áður í sögu Póllands. Ef til vill vorum við of andvaralaus, of sannfærð um að nokkuð þessu líkt gæti aldrei gerst í Póllandi, því Pólland er almennt mjög öruggt land.“

Þá segir Kropiwnicki mikilvægt að Pólverjar standi nú saman „hver sem pólitískur eða annar ágreiningur okkar kann að vera.“

„Fyrst og fremst ættum við ekki að láta þennan atburð skelfa okkur. Við ættum ekki að láta hryðjuverkaárásina hræða okkur,“ segir hann.

Aleksander Kropiwnicki, yfirmaður pólska sendiráðsins á Íslandi.

Þakklátur Þorgerði

Fjöldi þjóðarleiðtoga hefur fordæmt verknaðinn en spurður út í alþjóðlega samstöðu segir Kropiwnicki hana mjög mikilvæga.

„Við erum til dæmis mjög þakklát fyrir viðbrögð utanríkisráðherra Íslands, Þorgerðar Katrínar Gunnlaugsdóttur, sem vottaði samúð sína á X,“ segir hann.

„Ég hef einnig fengið samúðarkveðjur frá mörgum innan íslenska utanríkisráðuneytisins og frá erlendum sendierindrekum. Þetta er allt mjög uppörvandi og veitir okkur styrk. Það hjálpar mikið.

Það sama get ég sagt um pólsk stjórnmál og pólska leiðtoga, sem hafa fengið fjölmargar samúðarkveðjur víðs vegar að úr heiminum. Það sem ég get sagt núna er að við erum sannarlega djúpt snortin og viljum þakka öllum. Við erum afar þakklát.“

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅