Jakob Bjarnar gagnrýnir áform um nafnbirtingu vændiskaupenda – „Þarna ræður heift og einsýni femínista“
Nái nýtt vændisfrumvarp dómsmálaráðherra, Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur, framgangi þá verður ekki lengur hægt að ljúka málum sem varða vændiskaup með sektargreiðslu heldur verði ávallt gefin út ákæra og nöfn sakborninga í þessum brotamálum verða birt opinberlega.
Ráðherra vill með þessu auka fælingarmátt og draga úr eftirspurn eftir vændi. „Hundruð kvenna eru auglýstar í vændi hér á landi eins og fram kom í þætti Kveiks fyrr í vor,“ sagði Þorbjörg í pistli á dögunum. „Þar var sýnt frá því hvernig vændiskaupendur streymdu inn og út af gististað í Reykjavík á öllum tímum sólarhringsins.“
Benti hún einnig á að í rannsókn Stígamóta frá 2022 komi fram að vændi sé „neyðarráð í erfiðri félagslegri stöðu og afleiðingar þess á líkamlega og andlega líðan séu alvarlegar, djúpstæðar og langvarandi. Reynsla Stígamóta sýnir okkur líka að mörkin á milli vændis og mansals geta verið mjög óljós. Það sem í upphafi getur virst sem leið til fjárhagslegs sjálfstæðis getur þróast yfir í aðstæður þar sem aðrir hagnýta sér varnarleysi. Aðilar hagnýta sér stöðu seljenda og bjóða öryggisgæslu, og húsnæði og bjóða miðlun með þeim afleiðingum að einstaklingurinn missir allt ákvörðunarvald og allt sjálfstæði.“
Hjálpar varla vinkonu hans
Frumvarpið hefur víða verið skeggrætt, ekki síst á samfélagsmiðlum, og Kristinn Theodórsson hefur uppi á Facebook efasemdir um að lagabreytingin muni gagnast vinkonu hans sem er á kafi í dópi og stundar vændi. Viðskiptavinir hennar séu einmana vesalingar sem vilji borga fyrir nánd og kynmök. Kristinn kveður þó ekki upp úr um hvort þetta verði jákvæð eða neikvæð breyting en segir:
„Ég sem bara við hana um að ég verði tilgreindur sem vændiskaupandi. Þar sem ég er það ekki mun það ekkert bitna á henni. Ég er hvort eð er svo erfiður að það mun engu breyta fyrir mig að vera á svörtum listum hér og þar.
Að þessu gríni sögðu má vel vera að þetta sé góð stefna. En ég held að fólk viti almennt ekkert um þennan heim.“
Refsigleði femínista?
Blaðamaðurinn þekkti, Jakob Bjarnar Gretarsson, segir frumvarpið vera klastur yfir botnlaust rugl. Refsigleði og stolt feminista ráði þarna för. Hann spyr hvort fjölmiðlar verði skikkaðir til að birta nöfn vændiskaupenda en þumalputtaregla varðandi nafnbirtingar brotamanna sé sú að mörkin þar liggi við tveggja ára fangelsisdóm.
Jakob telur að þau sem starfa við vændisiðnað standi miklu veikari eftir en áður þar sem ákveðið hefur verið að gera vændiskaup refsiverð. Hann telur að vændi eigi annaðhvort að banna alfarið eða leyfa alfarið. Víða hafi verið gefið eftir í þessari harðlínustefnu en hér á landi eigi bara að gefa í. Pistill hans er eftirfarandi:
„Þarna ræður heift og einsýni femínista. Og fjárþörf jafnréttisiðnaðarins. Þessi svokallaða sænska leið hefur talist einn af stærstu sigrum femínistahreyfingarinnar en til að klambra þessu frumvarpi saman þurfti að endurskilgreina ýmis lykilhugtök. En þetta má lesa í greinargerð með frumvarpinu. Vændi er til að mynda endurskilgreint sem "ofbeldi gegn konum"? (Eins og karlmenn séu ekki í þessu líka? Og hvernig kom ofbeldi inn í þetta með beinum hætti?) Og mansali og vændi er ruglað markvisst saman. Þetta er bara óvart sitthver hluturinn.
Þetta er vitaskuld til að reyna að komast hjá hinum einföldu sannindum sem eru þau að banna kaup á einhverju en leyfa sölu stenst enga skoðun.
Nú hef ég ekki keypt mér vændi og er ekki á leiðinni til þess. Og ég vildi ekki að dætur mínar störfuðu við þetta. Bara svo allt þetta sé sagt, ég er ekki að akítera fyrir þessari starfsgrein. Síður en svo. Best væri að þetta væri ekki til. En þarna er skautað fram hjá þeirri staðreynd að þetta er ekki einsleitur hópur. Þetta eru ekki bara þær sem hafa leitað til Stígamóta og borið sig illa eftir á. Það er til eitthvað sem heitir "hamingjusama hóran". Ég veit það því ég skrifaði bók um hana við annan mann. Þær sem starfa við þetta hafa margar sagt að þær fyrirlíti þessa óumbeðnu hjálp.
Rannsóknir á þessari leið hafa sýnt að þeir sem starfa við vændisiðnaðinn standa miklu veikari eftir en áður. Þú kærir ekki þann sem þú átt í viðskiptum við. Og ef þær lenda í hrottum, sem er víst algengt, þá geta þær ekki kært þá. Það gátu þær meðan þetta var leyft. Annað hvort er að banna þetta alfarið eða leyfa. Ég held að það sé löngu sýnt að það er ekki hægt að vinna gegn "löstum" mannskepnunnar með boðum og bönnum og ströngum lagasetningum. Stríðið gegn fíkniefnum sýnir það svo ekki verður um villst. Víða hefur verið horfið frá þessu en ekki á Íslandi, þar er bara gefið í.
Því miður er þetta nýja frumvarp klastur yfir botnlaust rugl. Þetta er að berja hausnum við steininn. En í þessum efnum ræður stolt femínista miklu meiru en hagur þeirra sem við þetta starfa.
Þetta ákall með að birta nöfn og mynd yfir þá sem kaupa vændi, en bara í þeim málaflokki, stenst illa skoðun. Og hvað, á að skikka fjölmiðla til þess og þá þannig að þeir brjóta gegn eigin siðareglum? Og gefa skít í sjálfstæði þeirra. Þumalputtareglan er sú að menn séu ekki nafngreindir nema þeir fái tveggja ára dóm. Sjálfur aðhyllist ég hispursleysi í fréttaflutningi. Um að gera að nafngreina alla sem koma að dómsmálum. En þegar blaðamenn voru að vakta þessi mál á sínum tíma þá voru þetta bara einhverjir Jóar á bolnum sem enginn vissi hver er.“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗