Starf Carrick sagt í mikilli hættu - Fundað á næstu dögum
Michael Carrick, stjóri Manchester United, á í hættu á að missa starfið en forráðamenn félagsins íhuga að gera breytingar á næstu dögum.
Samkvæmt enskum fjölmiðlum ætlar stjórn United að fara yfir stöðu Carrick í landsleikjahléinu. Talksport gengur svo langt í kvöld að segja að starf hans sé í mikilli hættu.
Mauricio Pochettino er nefndur sem áhugaverður möguleiki til að taka við liðinu ef Carrick verður látinn fara.
Fabrizio Romano segir þá að erfið staða liðsins, janúarglugginn og framtíð Carrick sé á meðal þess sem forráðamenn muni skoða næstu daga.
United hefur byrjað skelfilega og er í fallsæti í ensku úrvalsdeildinni.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗